Pingdom Check
10/15/2026 | 11:00 AM

Icelandair og Southwest tengja vildarkerfi sín

Við erum sífellt að leita nýrra leiða til að bjóða fleiri og betri ferðamöguleika og það gleður okkur að tilkynna að Icelandair og Southwest Airlines haldi áfram að þróa samstarf sitt þannig að það nái einnig til vildarkerfa beggja flugfélaganna.

Hvað þýðir þetta fyrir farþega?

Vorið 2027 munu félagar í Icelandair Saga Club geta safnað Vildarpunktum og Fríðindastigum með þegar flogið er með Southwest. Félagar geta einnig greitt fyrir alla bókunina með Vildarpunktum, þ.m.t. fyrir flugleggi með Southwest, og notað punkta samhliða öðrum greiðslumátum þegar bókað er í gegnum Icelandair.

Rapid Rewards, sem er vildarklúbbur Southwest, telur nú um 100 milljónir félaga eftir öran vöxt síðustu ára. Aukið samstarf Southwest og Icelandair mun gera félögum í vildarklúbbi Southwest Rapid Rewards kleift að safna og nota punkta fyrir ferðir með Icelandair. Samstarfið gerir þeim einnig kleift að bóka alla ferðina með Icelandair og Southwest á einum flugmiða.

Mikilvægt samstarf

Samstarfið hófst árið 2025 þegar Icelandair varð fyrsta samstarfsflugfélag Southwest. Síðan þá hafa viðskiptavinir getað bókað tengiflug á einum flugmiða í gegnum sex tengiflugvelli í Bandaríkjunum: Baltimore, Nashville, Denver, Orlando, Pittsburgh og Raleigh-Durham.

Næsta sumar bætist St. Louis við sem sjöundi tengiflugvöllurinn þegar Icelandair hefur árstíðabundið flug milli Keflavíkur og St. Louis þann 14. maí 2027. Southwest er stærsta flugfélagið í St. Louis og borgin verður því nýr tengipunktur milli Norður-Ameríku, Íslands og Evrópu.

Frá þessum tengiflugvöllum flýgur Southwest til yfir 100 áfangastaða, þar á meðal Austin, Cincinnati, Columbus, Dallas, Phoenix og Salt Lake City í Bandaríkjunum. Í hina áttina geta viðskiptavinir Southwest tengst leiðakerfi okkar til áfangastaða á Íslandi, Grænlandi og í Evrópu.

Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair:  

„Southwest er frábær samstarfsaðili og með áframhaldandi þróun samstarfsins bætast sífellt fleiri ferðamöguleikar við fyrir viðskiptavini beggja félaga. Þessi nýjasta viðbót er mjög kærkomin þar sem viðskiptavinir geta nú bæði safnað og nýtt Vildarpunkta sína fyrir allt ferðalagið á milli leiðakerfa félaganna.“  

Viðskiptavinir Southwest geta nýtt sér tengingar við víðtækt leiðakerfi Icelandair, sem nær til fimm flugvalla á Íslandi, fjögurra á Grænlandi og yfir 30 áfangastaða í Evrópu.

Evrópska leiðakerfið okkar nær til stórborga á borð við París, London og Amsterdam, vinsælla norrænna borga eins og Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Oslóar og eftirlætisáfangastaða allt árið um kring, þar á meðal Rómar, Lissabon, Barcelona og Prag.

Við hlökkum til að bjóða farþega Southwest velkomna um borð!

Nánari upplýsingar um samstarf

Með aukinni áherslu á samstarf við önnur flugfélög erum við sífellt að styrkja leiðakerfi okkar og bjóða upp á fleiri möguleika í tengiflugi sem gera okkar farþegum kleift að ferðast á nýja og spennandi áfangastaði. St. Louis í Missouri er nýjasti áfangastaðurinn í sívaxandi leiðakerfi okkar, sem telur nú 17 áfangastaði í Norður-Ameríku og 38 í Evrópu. Auk þess deilum við flugleiðum og flugferðum með samstarfsaðilum okkar til að ná til fleiri áfangastaða, með öllum sömu fríðindum og þú nýtur þegar þú flýgur með Icelandair.

Á síðunni um samstarfsflugfélög okkar finnur þú frekari upplýsingar um þau flugfélög sem við störfum með en það gerir okkur kleift að færa heiminn nær Íslandi.

Fylgstu með fréttunum!

Langar þig að heyra um þá nýju möguleika sem samstarf eins og þetta opnar? Eða viltu vera meðal þeirra fyrstu sem frétta af bestu verðunum okkar? Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá öll bestu tilboðin send til þín í tölvupósti og ekki láta neinar spennandi ferðahugmyndir fram hjá þér fara.