Flug til Saint Louis með Icelandair - verð frá 90.267 kr.*

Afsláttarkóði

Flug til Saint Louis (STL) á næstu þremur mánuðum

Icelandair flug til Saint Louis - frá 118.651 kr.

kr.

Reykjavík (REK)-

Saint Louis (STL)
01. des. 2026 - 08. des. 2026
Frá
118.651 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (REK)-

Saint Louis (STL)
25. des. 2026 - 31. des. 2026
Frá
121.551 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Planaðu ferðalag til Saint Louis (STL) með góðum fyrirvara

Skoðaðu okkar lægsta verð árið 2026 og síðar

kr.
Planaðu ferðalag til Saint Louis (STL) með góðum fyrirvara
Frá
Til
Fargjald
Dagsetningar
Verð
Reykjavík (KEF)Saint Louis (STL)Báðar leiðir
/
Economy
17. sep. 2027 - 24. sep. 2027

Frá

90.267 kr.

Síðast skoðað: 1 dagur síðan

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalag til Saint Louis

Boginn séður frá Old Courthouse í St. Louis

Kynning á St. Louis

Velkomin til St. Louis í Missouri! Borgin er þekkt sem „Hliðið að vestrinu“ en þar má finna hið glæsilega Gateway Arch minnismerki.

Við munum fljúga til St. Louis þrisvar til fjórum sinnum í viku frá miðjum maí og út október.

Borgin býður upp á sannkallaða bandaríska stemningu ásamt hlýjum móttökum að hætti miðvesturríkjanna. Þar er hægt að bóka hafnaboltaleik með St. Louis Cardinals, kíkja á áhugaverð söfn, fara í göngutúr í gegnum grasagarðinn eða kynnast matarmenningu borgarinnar.

Borgin og svæðið

Á svæðinu búa um 300.000 manns og þar blómstrar sköpunarkraftur, fjölbreytt tónlistarsena og afslappað andrúmsloft einkennir svæðið. Borgin stendur við ármót Missouri- og Mississippi-fljótanna, sem setur svip sinn á daglegt líf, með almenningsgörðum, gönguleiðum og fallegu útsýni meðfram bökkunum.

St. Louis er vinaleg og þægileg borg sem vert er að heimsækja.

Boginn í St. Louis séður frá tjörn í grenndinni.
Simpansi í dýragarðinum í St. Louis

Hvað er við að vera í St. Louis?

Það er tilvalið að fara í útsýnisferð upp í Gateway Arch sem er 192 metra hátt bogadregið kennileiti við árbakka Mississippi-fljóts. Boginn á að tákna þenslu Bandaríkjanna vestur á bóginn og hina mikilvægu gátt sem St. Louis var milli austurs og vesturs. Þar er einnig safn og upplýsingamiðstöð fyrir þetta helsta kennileiti borgarinnar.

Meðal annarra staða sem er gaman að heimsækja er Anheuser-Busch brugghúsið sem bruggar Budweiser-bjórinn og er einn stærsti bjórframleiðandi heims. Gestum gefst einnig tækifæri á að skoða glæsilegar hesthúsabyggingar Clydesdale-hestanna.

Hið látlausa nafn City Museum gefur litla vísbendingu um hvað bíður innandyra. Safnið er risastórt og ævintýralegt – eins konar gagnvirkur leikvöllur og listaverk gert úr endurunnum hlutum. Auk þess eru þar rennibrautir, parísarhjól á þakinu, spilasalur og margt fleira.

Önnur afþreying

Hafnabolti er lífsstíll fyrir mörg í St. Louis. Ein besta leiðin til að kynnast íþróttamenningu borgarinnar er að fara á leik með Cardinals á Busch Stadium í miðborginni. Jafnvel þótt þú sért ekki harður aðdáandi er stemningin á leikdegi vel þess virði að njóta.

Forest Park er svo víðfeðmt svæði og þar má finna dýragarð, listasafn og vísindamiðstöð, auk fjölda göngustíga og hjólaleiða. Fyrir þau sem vilja meira fjör er hægt að fara í siglingu eða leigja kajak á Mississippi-fljóti.

Hljómsveitarpallurinn í Forest Park – fallegur skáli við tjörn umkringdur trjám.
Rausnarlegur diskur af grillmat

Veitingastaðir í St. Louis

Matarmenningin í St. Louis er fjölbreytt og spennandi. Það er áhugavert að fara í mathöllina í City Foundry STL og skoða úrvalið. Önnur svæði sem matgæðingar ættu að kynna sér eru Delmar Loop, Central West End og The Hill (sögufrægt hverfi með ítölskum blæ).

Djúpsteikt ravíólí eða T-Ravs er stökkt pasta með osti og kjöti sem enginn sælkeri má láta fram hjá sér fara. Útfærslan kom til sögunnar árið 1947 þegar kokkur missti óvart ravíólí ofan í heita olíu. Einnig er upplagt að fá sér pítsu að hætti St. Louis, með stökkum, þunnum botni sem er þakinn tómatsósu, áleggi og osti, sem var sérstaklega fundinn upp fyrir þessa pítsu. Pítsan er svo skorin í litla ferninga áður en hún er borin fram.

Góður grillmatur er vinsæll og fæst víðs vegar um borgina ásamt eftirréttum eins og „ooey gooey butter cake“(klístruð smjörkaka) og „frozen custard“(frosinn búðingur).

Barir og lifandi tónlist

Tónlist er samofin sögu borgarinnar. Hún átti þátt í að móta blús, djass og ragtime, og goðsagnir á borð við Chuck Berry settu varanlegt mark sitt á bandaríska tónlist hér. Í dag má finna lifandi tónlist um alla borg, allt frá notalegum minni djassklúbbum til stórra tónleikastaða.

Vert er að hafa augun opin fyrir Blueberry Hill, kennileiti sem er nátengt Chuck Berry. Ef þú vilt fjöruga kvöldstund er Ballpark Village vinsæll staður fyrir drykki, mat og lifandi tónlist. Hann er við hliðina á Busch Stadium og því tilvalin staðsetning fyrir leik.

Boginn í St. Louis og árbakkinn að næturlagi
Stan Musial Veterans Memorial brúin, óformlega kölluð Stan Span

Að komast um borgina

St. Louis Lambert-alþjóðaflugvöllurinn (STL) er um 24 km norðvestur af miðborginni. Þar er lestarkerfi sem heitir MetroLink og hentar vel til að komast frá flugvellinum auk þess sem það tengir nokkra helstu ferðamannastaði við miðborgina. Línurnar eru tvær (rauða línan og bláa línan) og helstu viðkomustaðir eru Laclede's Landing (fyrir Gateway Arch), Forest Park-DeBaliviere og Stadium.

Auðvelt er að komast um borgina á bílaleigubíl eða með samgönguöppum á borð við Uber og Lyft. Stundum getur verið erfitt að finna bílastæði í miðborginni en hótel bjóða gestum oft upp á ókeypis bílastæði.

Ferðalög út fyrir St. Louis

Í Missouri og á svæðinu í kring er nóg við að vera. Í stuttri akstursfjarlægð frá St. Louis eru Hermann og Augusta, fallegir smábæir í vínræktarhéraði Missouri. Náttúruunnendur geta skoðað Meramec-þjóðgarðinn sem hefur að geyma neðanjarðarhella og áhugafólk um sögu getur farið í siglingu með fljótabát á Mississippi eða heimsótt æskuheimili Marks Twain í Hannibal.

Þjóðgarðar á borð við Elephant Rocks og Johnson's Shut-Ins bjóða upp á ýmsa afþreyingu og fallegar gönguleiðir. Fyrir enn lengra ferðalag er Lake of the Ozarks vinsæll áfangastaður með fallega smábátahöfn og iðandi líf.

St. Louis séð úr lofti

Gerðu allt klárt fyrir ferðina

kona sem slakar á í sundlaug hótelsins

Bóka gistingu

Þú safnar Vildarpunktum með hótelbókuninni hjá Booking.com.

Skoða nánar
kona sem nýtur fjallasýnar úr appelsínugulu bílnum sínum

Leigja bíl

Þú safnar Vildarpunktum þegar þú leigir bílinn í gegnum Booking.com.

Skoða nánar
Par séð að aftan, horfir á borgarhringlínu

Afþreying fyrir ferðalagið

Planaðu afþreyingu fyrir ferðina og safnaðu Vildarpunktum.

Skoða nánar