Fljúgðu með Icelandair til Bandaríkjanna - verð frá 67.801 kr.*
Flug til Bandaríkjanna á næstu þremur mánuðum
Icelandair flug til Bandaríkjanna - frá 67.801 kr.
Reykjavík (KEF)-
New York (NYC)Reykjavík (KEF)-
New York (NYC)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Washington (IAD)Reykjavík (KEF)-
Washington (IAD)Reykjavík (KEF)-
Chicago (ORD)Reykjavík (KEF)-
Chicago (ORD)Reykjavík (KEF)-
Minneapolis-St. Paul (MSP)Reykjavík (KEF)-
Minneapolis-St. Paul (MSP)Reykjavík (KEF)-
Raleigh-Durham (RDU)Reykjavík (KEF)-
Raleigh-Durham (RDU)Flug með Icelandair: Meira en bara ferðalag
Rífleg farangursheimild
Skoða nánar
Afþreying fyrir alla aldurshópa
Skoða nánar
Gott úrval af mat og drykk
Skoða nánarPlanaðu fram í tímann! Bókaðu flug til Bandaríkjanna
Skoðaðu okkar lægsta verð árið 2026 og síðar
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð | |
|---|---|---|---|---|---|
| Reykjavík (KEF) | New York (NYC) | Báðar leiðir / Economy | 26. des. 2026 - 21. jan. 2027 | Frá 67.801 kr. Síðast skoðað: 2 dagar síðan | |
| Reykjavík (KEF) | New York (NYC) | Báðar leiðir / Economy | 28. des. 2026 - 31. des. 2026 | Frá 67.801 kr. Síðast skoðað: 2 dagar síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Boston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 22. des. 2026 - 05. jan. 2027 | Frá 70.421 kr. Síðast skoðað: 20 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Boston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 22. des. 2026 - 22. jan. 2027 | Frá 70.421 kr. Síðast skoðað: 20 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Washington (IAD) | Báðar leiðir / Economy | 03. feb. 2027 - 26. feb. 2027 | Frá 73.321 kr. Síðast skoðað: 21 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Washington (IAD) | Báðar leiðir / Economy | 07. feb. 2027 - 09. mar. 2027 | Frá 73.321 kr. Síðast skoðað: 21 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Chicago (ORD) | Báðar leiðir / Economy | 04. feb. 2027 - 15. feb. 2027 | Frá 75.901 kr. Síðast skoðað: 19 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Chicago (ORD) | Báðar leiðir / Economy | 04. feb. 2027 - 18. feb. 2027 | Frá 75.901 kr. Síðast skoðað: 19 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Minneapolis-St. Paul (MSP) | Báðar leiðir / Economy | 12. mar. 2027 - 22. mar. 2027 | Frá 76.421 kr. Síðast skoðað: 1 dagur síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Minneapolis-St. Paul (MSP) | Báðar leiðir / Economy | 12. mar. 2027 - 31. mar. 2027 | Frá 76.421 kr. Síðast skoðað: 1 dagur síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Raleigh-Durham (RDU) | Báðar leiðir / Economy | 11. nóv. 2026 - 25. nóv. 2026 | Frá 77.501 kr. Síðast skoðað: 23 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Raleigh-Durham (RDU) | Báðar leiðir / Economy | 11. nóv. 2026 - 11. des. 2026 | Frá 77.501 kr. Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
Ferðalög til Bandaríkjanna

Bandaríkin í hnotskurn
Velkomin til lands tækifæranna: Bandaríkja Norður-Ameríku!
Í Bandaríkjunum er svo margt að sjá, fjölbreytileiki náttúrunnar, mannvirkjanna og mannlífsins svo mikill, að það getur orðið yfirþyrmandi.
En það þýðir líka að í Bandaríkjunum finnur þú það frí sem þú sækist eftir, hvort sem þú hefur í huga stórborgarferð, afslappað strandlíf, eða ævintýraferð upp til fjalla.
Icelandair býður upp á flug til fjölda borga í Bandaríkjunum, þar á meðal New York, Chicago og Orlando.
Samgöngur í Bandaríkjunum
Að ferðast milli staða í Bandaríkin er ævintýri í sjálfu sér og þú hefur úr fjölda samgönguleiða að velja.
Stærstu borgir Bandaríkjanna búa yfir aðgengilegum og víðfeðmum almenningssamgöngum. Hægt er að ferðast innan ríkjanna með strætisvögnum, sporvögnum, ofan- og neðanjarðarlestum.
Innanlandsflug er vinsælt til að ferðast milli fylkja. En ef þú vilt heldur sjá meira af Bandaríkjunum er einnig hægt að kaupa miða með Amtrak-lest og njóta fjölbreytilegs landslags þessa gríðarstóra landmassa.


Bandaríkin að sumri og vetri
Að mörgu leyti vinnur stærðin með Bandaríkjunum. Nóg er við að vera jafnt vetur sem sumar, miðpunktar ferðamennskunar reika einfaldlega milli svæða í takt við árstíðirnar.
Þau sem njóta sín í sólskini eða á brimbretti munu elska sumarið í Ameríku. Þægilegt hitastig og heiður og blár himinn einkenna árstíðina, svo að útvistarfólk er í essinu sínu á þessum tíma! Aftur á móti er sumarið líka hápunktur ferðamannatímabilsins svo að verðlagið er almennt hærra en á öðrum árstíma.
Veturinn í Bandaríkjunum býr líka yfir sérstökum töfrum sem við höfum öll fengið smjörþefinn af á hvíta tjaldinu: mikilfengleg ljósadýrð, miklar snjóbreiður, jólaskraut sem gengur langt fram úr öllu hófi. Skíðafólk leitar spennt í brekkurnar í Aspen, Vail og Brekcenridge, en þau sem eru á höttunum eftir birtu halda suður í Flórídasólina.
Bandaríkin að hausti og vori
Ef þú elskar sólríka og bjarta daga, en ert síður hrifinn af háu verðlagi, er vorið kjörin árstíð til að heimsækja Bandaríkin.
Náttúruunnendur geta heimsótt þjóðgarðana Yellowstone, Grand Canyon og Zion. En vorið er líka tilvalið til að upplifa borgarlífið utan háannatíma.
Haustið er víða snoturt og fagurlitað og það er á þessum tíma árs sem íþróttaáhugafólk iðar í skinninu vegna upphafs keppnistímabilsins í ameríska fótboltanum. Slástu í hópinn og upplifðu stemninguna!


Spennandi staðir í Bandaríkjunum
Nóg er við að vera á hinni geysilegu víðáttu sem teygir sig milli Kyrrahafsins og Atlantshafsins. Hér eru nokkrir spennandi staðir:
- Brooklynbrúin – hjólaðu yfir þessa myndrænu og sögufrægu hengibrú og virtu fyrir þér útsýnið yfir Austurána og borgarlandslagið í kring.
- Grand Canyon – ein þekktasta náttúruperla heims, hér hefur göngu- og útvistarfólk ærið verkefni fyrir höndum.
- Walt Disney World – hvorki meira né minna en fjórir skemmtigarðar og tveir vatnsgarðar í kaupbæti, ein besta fjölskylduskemmtun sem Bandaríkin bjóða upp á.
- Smithsonian-safnið – mikill fjöldi fyrsta flokks safna og sýninga í Washington DC. Listir, saga, menning og vísindi í einum glæsilegum pakka.
Vinsælustu borgir Bandaríkjanna
Eitt helsta sérkenni Bandaríkjanna eru stærð og fjölbreytileiki landsins, fylkin 52 sem öll hafa sína eigin sjálfsmynd og sögu.
Andrúmsloftið er rafmagnað í stórborginni New York, þar sem getur að líta mörg þekktustu kennileiti Bandaríkjanna: Frelsisstyttuna, Times Square og Empire State-bygginguna.
Miðpunktur stjórnmálanna í Bandaríkjunum, Washington DC, er fullur af minnisvörðum um sögu landsins.
Boston er önnur ekki síður söguleg borg. Farðu í sögugöngu um gamla bæinn, smakkaðu á sjávaréttum á heimsmælikvarða og fáðu þér sæti í stúkunni í Fenway Park.
Fjörefnið er óþrjótandi í Orlando. Bæði skín sólin viðstöðulaust og svo er ógrynni skemmtigarða í grennd við borgina, en þar ber helst að nefna Walt Disney World og Universal Studios.

Gerðu allt klárt fyrir ferðina
