Flug til Gdańsk með Icelandair - verð frá 35.851 kr.*

Afsláttarkóði
Sýn yfir sögulegu höfnina í Gdańsk með vatni og himni.

Flug til Gdańsk (GDN) á næstu þremur mánuðum

Icelandair flug frá 35.851 kr.

kr.

Reykjavík (KEF)-

Gdańsk (GDN)
02. nóv. 2026 - 12. nóv. 2026
Frá
35.841 kr.
Síðast skoðað: 20 klst. síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (KEF)-

Gdańsk (GDN)
24. okt. 2026 - 31. okt. 2026
Frá
35.851 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (REK)-

Gdańsk (GDN)
05. nóv. 2026 - 09. nóv. 2026
Frá
43.541 kr.
Síðast skoðað: 1 klst. síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (REK)-

Gdańsk (GDN)
24. sep. 2026 - 22. okt. 2026
Frá
49.407 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Planaðu ferðalag til Gdańsk (GDN) með góðum fyrirvara

Skoðaðu okkar lægsta verð árið 2026 og síðar

kr.
Planaðu ferðalag til Gdańsk (GDN) með góðum fyrirvara
Frá
Til
Fargjald
Dagsetningar
Verð
Reykjavík (KEF)Gdańsk (GDN)Báðar leiðir
/
Economy
02. nóv. 2026 - 12. nóv. 2026

Frá

35.841 kr.

Síðast skoðað: 20 klst. síðan

Reykjavík (KEF)Gdańsk (GDN)Báðar leiðir
/
Economy
24. okt. 2026 - 31. okt. 2026

Frá

35.851 kr.

Síðast skoðað: 1 dagur síðan

Reykjavík (REK)Gdańsk (GDN)Báðar leiðir
/
Economy
22. jan. 2027 - 28. jan. 2027

Frá

37.241 kr.

Síðast skoðað: 6 klst. síðan

Reykjavík (REK)Gdańsk (GDN)Báðar leiðir
/
Economy
15. júl. 2027 - 30. júl. 2027

Frá

37.507 kr.

Síðast skoðað: 1 dagur síðan

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalag til Gdańsk

Sögulega höfnin í Gdańsk með blómstrandi tré í forgrunni

Gdańsk í hnotskurn

Verið velkomin til Gdańsk! Þessi líflega borg í Norður-Póllandi á sér mörg hundruð ára sögu í siglingum, sem endurspeglast í listskrúðugum byggingum og sögufrægum bryggjuhverfum. Hér er nóg að sjá, sjávarútsýnið er magnað og gamli bærinn spennandi.

Icelandair hefur flug til Gdańsk haustið 2026, en flogið verður 3 til 4 sinnum á viku frá og með 18. september 2026 til mars 2027. Hægt er að bóka flug núna, og njóta þess að hlakka til að upplifa ríka sögu og náttúru svæðisins, og hlýjar móttökur heimamanna.

Gdańsk er einstök

Gdańsk er staðsett við Eystrasaltið. Borgin er við Motława-ána, en sú staðsetning gerði hana að einni mikilvægustu höfn Hansasambandsins í Norður-Evrópu. Sagnaarfur borgarinnar er greinilegur í gamla bænum, en þar eru gangstéttirnar úr götusteinum og byggingarnar litskrúðugar.

Hinu megin við ána er Kornhlöðueyjan (e. Granary Island), sem samanstendur af sögufrægum vörugeymslum, nútímalegum hótelum og veitingastöðum, og gönguleiðum við ána.

Gdańsk er á menningarsvæðinu Kaszuby, sem á sér sitt eigið tungumál, hefðir og sagnaarf. Náttúran á svæðinu einkennist af hólum og stöðuvötnum, og þorpin þar bera kennsl um menningararf þess.

Söguleg stytta í Gdańsk í Póllandi
Litrík, söguleg hús í Gdańsk

Kannaðu sögulega staði í Gdańsk

Best er að byrja leiðangurinn um Gdańsk í hinum sögulega gamla bæ (e. Main Town). Þar má skoða skrautlegu kaupmannshús markaðsins Długi Targ (e. Long Market), og hinn víðfræga Neptúnusarbrunn. Aðrir merkisstaðir í nágrenninu eru Maríukirkja (e. St Mary's Church), ein elsta kirkjan úr múrsteinum í heiminum, og miðaldarkraninn (e. medieval crane), sem er sögufrægt tákn borgarinnar.

Fyrir áhugamenn um heimssöguna er Safnið um aðra heimstyrjöldina (e. Museum of the Second World War) eitt það merkasta í Evrópu. Þar má kynnast áhrifum stríðsins á Pólland og heiminn allan.

Aðrir merkisstaðir fyrir menningarunnendur eru safnið "European Solidarity Centre for modern history", hið fræga Græna hlið (e. Green Gate), og Rafsafnið (e. Amber Museum), þar sem farið er yfir sögu hins "baltneska gulls", þ.e. steindarinnar rafs. Að lokum má nefna hinn gullfallega almenningsgarð "Oliwski Park".

Að grúska og gera í Gdańsk

Boðið er upp á bátsferðir um borgina meðfram Motława-ánni. Þá eru einnig farnar bátsferðir til Westerplatte, en það var þar sem fyrsta byssuskoti seinni heimstyrjaldarinnar var hleypt af. Frá ánni má sjá borgina og byggingarlist borgarinnar frá nýju spennandi sjónarhorni. Einnig má sjá borgina að ofan frá ráðhústurninum, eða turni Maríukirkju.

Ein helsta afurð Gdańsk á fyrri tímum var raf, og er borgin því oft kölluð "Höfuðborg rafsins". Hægt er að kaupa skartgripi úr rafi, eða fara á námskeið þar sem kennt er hvernig á að vinna steindina og gera úr henni ýmsa muni. Hvítar strandir Brzeźno og Sopot eru líka í nágrenninu, og auðvelt er að komast þangað með lest eða sporvagni.

Bakkinn í Gdańsk með hringekju í forgrunni
Hefðbundinn markaður með pylsum og grænmeti á borðum

Matarmenning Gdańsk

Götu- og heimilismat er að finna á hverju horni í Gdańsk. Spennandi er að smakka zurek (rúgsúpa), barszcz (rauðrófusúpa), eða pierogi, það eru vel þekktar "dumpling" soðkökur Póllands sem innihalda allt frá kartöflum og osti til ávaxta og berja. Svæðið er einning þekkt fyrir reyktan fisk, og þá aðallega síld og lax.

Heimamenn eru einnig þekktir fyrir kartöflupönnukökur, hægeldað kjöt, auk berja og sveppa sem týndir eru á svæðinu. Hægt er að finna veitingastaði sem bjóða upp á þessa hefðbundnu rétti í gamla bænum eða við Motława-ánna

Verslað í Gdańsk

Gdańsk er einn besti staður jarðar til þess að finna handverk úr rafi. Við Mariacka-stræti eru ýmsar handverksbúðir sem bjóða upp á ýmsilegt úr þessari merku steind, og meðal annars skartgripi.

Jólamarkaðurinn í Gdańsk er einn sá besti í Póllandi, og vetrargestir skulu ekki láta hann framhjá sér fara. Hann er haldinn frá og með síðustu vikunni í nóvember við Targ Weglowy torgið, sem umbreytist í fjölbreytt völundarhús sölubása þar sem heimamenn selja handverk, raf, leirmuni, ullarfatnað, og ýmiss konar góðgæti.

Í gamla bænum eru verslunargötur sem selja allskonar listamuni frá svæðinu, og líka föt og aðrar pólskar hönnunarvörur. Fyrir þá sem vilja nútímalegri verslunarupplifun er verslunarmiðstöðin "Forum Gdańsk" í nágrenninu.

Götubiti borinn fram í Póllandi
Lestarstöðin í Gdańsk

Ferðast um borgina

Gdańsk Lech Wałęsa flugvöllurinn (GDN) er aðal aðkomustaður svæðisins, og er í um 16 kílómetra fjarlægð frá miðbæ borgarinnar. Frá flugvellinum ganga lestir, og hægt er að komast með þeim til Gdańsk Główny lestarstöðvarinnar í miðbænum ef skipt er um lest á Gdańsk Wrzeszcz lestarstöðinni. Strætó gengur einnig beint af flugvellinum og nokkrar leiðir, t.d. 210 leiðin, ganga þaðan í miðbæinn. Þá er líka hægt að taka leigubíl, en bílferðin tekur um 20 - 30 mínútur.

Þegar komið er inn í borgina er tiltölulega auðvelt að ferðast um hana. Sporvagnar og strætóar ganga um alla borgina, og með SKM lestum er hægt að ferðast til nærliggjandi borga við ströndina á borð við Sopot og Gdynia. Í miðbænum er oftast best að fara leiða sinna fótgangandi, og gönguleiðir við árbakkann gera það einfalt. Á sumrin ganga ferjur á ánni.

Ferðalag út fyrir Gdańsk

Það eru margir spennandi áfangastaðir í nágrenni Gdańsk. Borgin eru á hinu svokallaða "Tricity" svæði, sem samanstendur af borgunum Gdańsk, Sopot og Gdynia. Hver borg hefur sína sérstöðu: Gdańsk er sögufræg og menningarleg, Sopot er tilvalin til þess að slaka á á hvítum ströndum, og Gdynia er nútímaleg sjávarborg. Góð dagsferð frá Gdańsk er til Sopot, þar sem hægt er að njóta hvítra stranda við Eystrasaltið.

Þá býður kasjúbíska sveitin upp á gönguferðir í skóglendi, við stöðuvötn og meðfram hólum. Með útivist á svæðinu færðu pólsku sveitamenninguna beint í æð. Fyrir áhugamenn um heimssöguna er tilvalið að gera sér ferð að Malbork kastala Þýsku riddarana frá þrettándu öld, sem er eitt stærsta miðaldarhervirki Evrópu og er á lista UNESCO yfir heimsminjar.

Bakkinn í Gdańsk á sólsetursstundu með fallegum litum og ljósum

Gerðu allt klárt fyrir ferðina

kona sem slakar á í sundlaug hótelsins

Bóka gistingu

Þú safnar Vildarpunktum með hótelbókuninni hjá Booking.com.

Skoða nánar
kona sem nýtur fjallasýnar úr appelsínugulu bílnum sínum

Leigja bíl

Þú safnar Vildarpunktum þegar þú leigir bílinn í gegnum Booking.com.

Skoða nánar
Par séð að aftan, horfir á borgarhringlínu

Afþreying fyrir ferðalagið

Planaðu afþreyingu fyrir ferðina og safnaðu Vildarpunktum.

Skoða nánar