Flug til Nashville með Icelandair - verð frá 49.761 kr.*

Afsláttarkóði

Flug til Nashville (BNA) á næstu þremur mánuðum

kr.

Reykjavík (KEF)-

Nashville (BNA)
25. nóv. 2026 - 29. nóv. 2026
Frá
49.761 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (KEF)-

Nashville (BNA)
22. nóv. 2026 - 09. des. 2026
Frá
49.761 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (REK)-

Nashville (BNA)
26. nóv. 2026 - 04. des. 2026
Frá
49.761 kr.
Síðast skoðað: 19 klst. síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (REK)-

Nashville (BNA)
26. nóv. 2026 - 07. des. 2026
Frá
49.761 kr.
Síðast skoðað: 20 klst. síðan
Báðar leiðir
Economy
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Skoða ferðapakka frá Icelandair

Planaðu ferðalag til Nashville (BNA) með góðum fyrirvara

Skoðaðu okkar lægsta verð árið 2026 og síðar

kr.
Planaðu ferðalag til Nashville (BNA) með góðum fyrirvara
Frá
Til
Fargjald
Dagsetningar
Verð
Reykjavík (KEF)Nashville (BNA)Báðar leiðir
/
Economy
17. des. 2026 - 04. jan. 2027

Frá

49.761 kr.

Síðast skoðað: 1 dagur síðan

Reykjavík (KEF)Nashville (BNA)Báðar leiðir
/
Economy
08. nóv. 2026 - 16. nóv. 2026

Frá

49.761 kr.

Síðast skoðað: 1 dagur síðan

Reykjavík (REK)Nashville (BNA)Báðar leiðir
/
Economy
26. nóv. 2026 - 04. des. 2026

Frá

49.761 kr.

Síðast skoðað: 19 klst. síðan

Reykjavík (REK)Nashville (BNA)Báðar leiðir
/
Economy
26. nóv. 2026 - 07. des. 2026

Frá

49.761 kr.

Síðast skoðað: 20 klst. síðan

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalag til Nashville

Nashville í hnotskurn

Velkomin til Nashville!

Það er tónlistin sem hefur borið hróður borgarinnar hvað víðast og trekkir að tónlistarfólk og tónlistarunnendur hvaðanæva að í heiminum.

Icelandair bætir Nashville í hóp áfangastaða sinna vorið 2025. Flogið verður fjórum sinnum í viku frá 10. apríl til 27. október. Bókaðu flug til Nashville, upplifðu honky-tonk píanóið og gestrisni heimamanna.

Tónlistarborgin Nashville

Í Nashville búa um 700.000 manns. Hún er fjölmennasta borg Tennessee og jafnframt höfuðborg fylkisins. Tónlistin á sér djúpar rætur í menningu borgarinnar. Hér mætast fortíð, nútíð og framtíð bandarískrar tónlistar: kantrí, bluegrass, rokk, popp, gospel, klassík, djass og blús. Í borginni blómstrar geysifjölbreytt tónlistarlíf.

Nashville braut sér leið inn í amerísku kántrísenuna á öldum ljósvakans. Hinn goðsagnakenndi útvarpsþáttur „Grand Ole Opry“ hóf göngu sína í borginni árið 1925 og var fyrstu hálfu öldina útvarpað frá Ryman Auditorium í miðbæ borgarinnar, en frá og með 1974 hefur hann verið sendur út fimm sinum í viku frá Grand Ole Opry House.

List og menning í Nashville

Enginn vafi leikur á því að tónlistin er eitt aðal aðdráttarafl Nashville, en Country Music Hall of Fame og upptökuverið Music Row eru meðal vinsælustu áfangastaða ferðamanna. Sérstök söfn eru tileinkuð kántríhetjum á borð við Johnny Cash, Patsy Klein og Willie Nelson. Ekki láta honky-tonk barina fram hjá þér fara og líttu við á tónleikum í Grand Ole Opry House.

En tónlistin er ekki upphaf og endir alls í Nashville. Listalíf blómstar á mörgum sviðum, hér er spennandi matarmenning, nóg af verslunum og íþróttaviðburðum, fyrir utan stóra og líflega almenningsgarða.

Annar markverður áfangastaður er glæsilegt heimili sjöunda forseta Bandaríkjanna, Andrew Jackson. Og í Centennial Park finnur þú meðal annars eftirlíkingu af gríska Parthenoninu í fullri stærð!

Íþróttir og afþreying í Nashville

Í Nashville er skyldumæting á tónleika, af nógu er að taka í þeim efnum. En það er líka kjörið að mæta á íþróttaleik til að blanda geði við heimamenn. Styddu við bakið á Tennessee Titans í æsilegum amerískum fótboltaleik eða fylgstu með Nashville Predators þjóta um íshokkívöllinn í hópi heitra áhangenda liðsins.

Ef þú vilt heldur vera þátttakandi í íþróttum en sitja í áhorfendastúkunni, má t.d. mæla með golfvellinum, róðrabáts- eða kanóaferð. Íbúar Nashville fara gjarnan í Warner Parks til að njóta veðurblíðu úti í guðsgrænni náttúrunni, en um skógi vaxnar hæðir svæðisins liggur fjöldi gönguleiða. Þegar sumarhitinn nær sem mestum hæðum bjóða nokkrir góðir vatnsgarðar upp á kælingu.

Út að borða í Nashville

Sérhver matgæðingur ætti að finna sitthvað við sitt hæfi í Nashville, en þar fylgjast veitingastaðirnir vel með nýjustu stefnum og straumum í matargerð. Þegar fer að líða að kvöldmat er kjörið að taka stefnuna á Germantown, East Nashville eða the Gulch.

Óhætt er að mæla með þremur sígildum réttum: „hot chicken“, grillmat að hætti heimamanna og „meat and three“. Rétturinn „hot chicken“ á uppruna sinn í Nashville snemma á síðustu öld. Um er að ræða steiktan kjúkling sem dýft er í rífandi sterka sósu og síðan borinn fram á hvítu brauði. Pantaðu réttinn á staðnum sem bjó hann til: Prince‘s Hot Chicken.

Tennessee-fylki er annálað fyrir bragðgóðan grillmat og Nashville er þar engin undantekning; sérstaklega má mæla með svínarifjum. Svo er það þriðji rétturinn, „meat and three“, hann færðu á hversdagslegri matsölustöðum, þeim sem heimamenn kalla „diner“. Þú velur hvers kyns kjöt þú vilt og þrjá hliðarrétti. Hefðundinn eftirréttur er sætt te með sneið af pæi.

Barir og lifandi tónlist í Nashville

Ljúfir tónar eru aldrei langt undan í Nashville og á breiðstrætinu Broadway er iðulega mikill glaumur og gleði. Kántrítónlistin glymur frá ótal sviðum. Gaman er að fá sér sæti á bar uppi á patio-verönd undir berum himni eða inni á hefðbundnum honky tonk bar. Hafðu augun opin fyrir hinum fjólubláa Tootsie‘s Orchide Lounge, heimsþekktri honky tonk búllu sem hefur verið starfandi síðan 1960.

Annar snar þáttur í menningu Nashville er Grand Ole Opry House, goðsagnakenndur tónleikasalur norðaustan af miðbænum. Kántrítónlistarmenn koma fram þar mörg kvöld í viku með stutt prógram. Heitir aðdáendur geta líka fengið að koma baksviðs. Opry-tónleikastaðurinn var áður staðsettur í Ryman Auditorium, þar sem enn er boðið upp á tónleika og ýmis konar viðburði.

Samgöngur í Nashville

Alþjóðaflugvöllurinn í Nashville er staðsettur um 13 km suðaustur af miðbænum. Auðvelt er að ferðast frá vellinum inn í miðbæ. Hægt er að taka sérstaka flugrútu, almenningsvagna (leið nr. 18 gengur á klukkutíma fresti) eða leigubíl. Uber og Lyft eru líka stafrækt í Nashville.

Almenningssamgöngukerfi borgarinnar samanstendur af strætisvögnum og lestum, en kerfið gengur undir nafninu WeGo Public Transit. Þónokkrir markverðir staðir í borginni eru hins vegar nokkuð langt út fyrir kjarnann, svo það getur komið sér vel að taka bíl á leigu.

Sum hótel bjóða upp á ókeypis bílastæði og það er tiltölulega þægilegt að finna stæði niður í bæ. Þú getur líka tekið hjól á leigu: BCycle hefur fleiri en 30 hjólastöðvar innan borgarmarkanna.

Ferðast út fyrir Nashville

Ef tónlistin er það sem dregur þig til Nashville, væri ekki vitlaust að fara í smá ferðalag, um 350 km suðvestur á bóginn, til annarrar stórmerkrar tónlistarborgar: Memphis. Í því samhengi má nefna blúsgötuna Beale Street, hið goðsagnakennda hljóðver Sun Studios sem átti mikilvægan þátt í þróun rokktónlistar, og auðvitað Graceland, heimili Elvis Presley.

Þú getur líka ferðast í hina áttina og litið við á Pigeon Forge. Þar má finna skemmtigarðinn Dollywood sem er í eigu Dolly Parton. Garðurinn er staðsettur við jaðar Reykjarfjallanna, the Great Smoky Mountains.

Gerðu allt klárt fyrir ferðina

kona sem slakar á í sundlaug hótelsins

Bóka gistingu

Þú safnar Vildarpunktum með hótelbókuninni hjá Booking.com.

Skoða nánar
kona sem nýtur fjallasýnar úr appelsínugulu bílnum sínum

Leigja bíl

Þú safnar Vildarpunktum þegar þú leigir bílinn í gegnum Booking.com.

Skoða nánar
Par séð að aftan, horfir á borgarhringlínu

Afþreying fyrir ferðalagið

Planaðu afþreyingu fyrir ferðina og safnaðu Vildarpunktum.

Skoða nánar