Flug með Icelandair: Meira en bara ferðalag
Rífleg farangursheimild
Skoða nánar
Afþreying fyrir alla aldurshópa
Skoða nánar
Icelandair flug til Tromsø - frá 42.661 kr.
Reykjavík (KEF)-
Tromsø (TOS)Reykjavík (KEF)-
Tromsø (TOS)Skoðaðu okkar lægsta verð árið 2026 og síðar
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð | |
|---|---|---|---|---|---|
| Reykjavík (KEF) | Tromsø (TOS) | Báðar leiðir / Economy | 11. des. 2026 - 08. jan. 2027 | Frá 42.661 kr. Síðast skoðað: 15 klst. síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Tromsø (TOS) | Báðar leiðir / Economy | 05. mar. 2027 - 08. mar. 2027 | Frá 42.661 kr. Síðast skoðað: 14 mínútur síðan |

Verið velkomin til Tromsø! Borgin er ein sú nyrsta í heimi og liggur um 350 km norðan við heimskautsbauginn. Hér mætast dramatísk náttúra norðurslóða og líflegt menningarlíf, og það er svo sannarlega úr mörgum ævintýrum að velja.
Icelandair býður upp á flug til Tromsø veturinn 2026-2027 og verður flogið tvisvar í viku frá 23. október 2026 fram í seinni hluta mars 2027. Bókaðu ferð til Tromsø og upplifðu vetrardýrðina og gestrisni heimamanna sem eru svo heppnir að kalla þessa norðurslóðaborg heimili sitt.
Tromsø er stærsta borg norðurhluta Noregs með um 79.000 íbúa. Borgin teygir sig yfir eyjuna Tromsøya sem liggur í mjóu sundi, umkringd stórbrotnum fjöllum.
Í nágrenni borgarinnar eru Tromsdalen og Kvaløya. Tromsdalen á meginlandinu er heimkynni Íshafsdómkirkjunnar (Arctic Cathedral) og Fjellheisen-kláfsins. Kvaløya er stærri eyja, þekkt fyrir sjávarþorp, hrjúfar strendur og norðurljós á veturna.
Á Tromsøya sjálfri er líflegur miðbær með kaffihúsum, söfnum og fallegri höfn. Storgata er helsta göngugatan og við Stortorget, aðaltorg borgarinnar, stendur hin sögulega Raketten-pylsuvagn sem hefur verið starfræktur síðan 1911.


Miðbær Tromsø er góður upphafspunktur fyrir skoðunarferðir um svæðið. Polar Museum veitir áhugaverða innsýn í sögu norðurslóða og hinum megin við brúna stendur hin glæsilega Íshafsdómkirkja (Arctic Cathedral). Einnig má ekki missa af ferð með Fjellheisen-kláfnum sem býður upp á stórbrotið útsýni yfir borgina, eyjarnar, firðina og hafið.
Eftir útsýnisferðina er tilvalið að rölta um miðbæinn, skoða söguleg timburhús, kaffihús, gallerí og höfnina. Polaria-safnið hentar vel fyrir alla fjölskylduna með sjávardýrum og fræðslu um norðurslóðir, og á Tröllasafninu má kynnast verum og vættum úr norskum þjóðsögum. Þá er einnig áhugavert að heimsækja Háskólasafn Tromsø og fræðast um samíska menningu og náttúrusögu svæðisins.
Veturnir í Tromsø einkennast af miklu skammdegi. Þann 27. nóvember hverfur sólin undir sjóndeildarhringinn og birtist ekki aftur fyrr en 15. janúar. Þetta tímabil kallast pólarnótt og skapar einstakar aðstæður til að sjá norðurljósin.
Mörg önnur norðurslóðaævintýri eru einnig í boði, eins og hundasleðaferðir, snjóþrúgugöngur og hvalaskoðun. Besti tíminn til að sjá hvali er yfirleitt frá nóvember til janúar. Útivistarfólk getur farið á skíði eða sleða í Tromsø Alpinpark, en fyrir rólegri upplifun er tilvalið að fara í hreindýrasleðaferð.


Bragðheimur norðurslóðanna er fjölbreyttur og hér er tilvalið að smakka ferskt sjávarfang og villibráð. Rjómalöguð fiskisúpa er vinsæll réttur og hreindýrakássa er einnig sígild norðurslóðamáltíð. Lambakjöt er vínsælt en þjóðarréttur Norðmanna, fårikål, er lambakássa með káli. Fyrir fljótlega máltíð er vinsælt að fá sér pylsu í lompe, eins konar mjúku kartöflubrauði.
Sjávarfang spilar stórt hlutverk í matarmenningu Tromsø og á matseðlum má finna ferskar rækjur, bleikju, þorsk og kóngakrabba. Með matnum er tilvalið að smakka bjór frá Mack, nyrsta brugghúsi heims. Í eftirréttum eru moltuber vinsæl, og klassískur kanilsnúður (kanelbolle) með heitu kakói klikkar seint.
Ef þú vilt einstakan minjagrip frá norðurslóðum er tilvalið að skoða verslanir sem selja samískt handverk, eins og silfurskart, hreindýraskinn og textílverk. Við Storgata má einnig finna tískuverslanir, útivistarverslanir og hönnunarbúðir sem selja norskar ullarvörur, keramík og hlýjan fatnað.
Verslunarmiðstöðvarnar Nerstranda og Jekta Storsenter eru einnig vinsælar. Við höfnina má svo finna smærri verslanir sem selja allt frá listaverkum og ljósmyndum til góðgætis til að taka með heim.


Tromsø-flugvöllur (TOS) er helsta tengingin við norður Noreg og er aðeins um 5 kílómetra frá miðbænum. Flybussen flugvallarrútan gengur reglulega til og frá miðbæ Tromsø og stoppar við helstu hótel á svæðinu. Einnig er auðvelt að taka strætó eða leigubíl frá flugvellinum og ferðin í miðbæinn tekur rúmar 10 mínútur.
Tromsø er lítil og þægileg borg þar sem helstu staðir eru í göngufæri. Strætósamgöngur eru góðar og tengja miðbæinn við Tromsdalen og nærliggjandi eyjar, til dæmis Íshafsdómkirkjuna og Fjellheisen-kláfinn. Þau sem vilja fara lengra út fyrir borgarmörkin geta kynnt sér skipulagðar skoðunarferðir.
Tromsø er ævintýralegur upphafsreitur fyrir þau sem vilja kanna norðurslóðirnar. Eyjan Kvaløya vestan við Tromsø er vinsæll áfangastaður með fallegum fjörðum og fjöllum og er tilvalin til að skoða dýralíf, ganga í snjó og dást að norðurljósunum.
Austan við Tromsø eru Lyngen-Alparnir, þekktir fyrir stórbrotið landslag, þar sem vinsælt er að fara á skíði og í hundasleðaferðir. Sommarøy er einnig fallegur áfangastaður með hvítum sandströndum og tærum sjó.
