1.maí -15.maí
Fararstjóri Lilja Jónsdóttir
Komdu með í notalegt frí á sólströnd Spánar, þar sem líflegar og skemmtilegar ferðir eru í boði.
Í ferðinni er lögð áhersla á samveru, létta dagskrá og skemmtilegar skoðunarferðir. Hreyfing, gönguferðir, spilakvöld, spilabingó og dans, svo eitthvað sé nefnt. Costa del Sol er áfangastaður sem er þekktur fyrir góða veðráttu, fallegar strendur og frábæra spænska matargerð.
Fararstjóri er Lilja Jónsdóttir, sem hefur verið fararstjóri í fjölda ára bæði í skemmtisiglingum, sólarlandaferðum og skíðaferðum.
Það er alltaf glaumur og gleði í kringum Lilju.