Pingdom Check

Lúxus sigling um Karíbahaf í nóvember

Sól og hiti í nóvember - Sigling í Karíbahafinu

Með nýju og glæsilegu skipi Celebrity Ascent

11. nóvember - 21. nóvember
Fararstjóri: Kristjana Lilja Wade

Miami og Ft. Lauderdale, Flórída - Willemstad, Curacao - Oranjestad, Aruba - George Town, Grand Cayman. 

Ferðalýsing 

Flogið er með Icelandair seinnipartinn 11. nóvember, lending er í Miami klukkan 20:55, ekið beint á  Marseilles Oceanfront South Beach hótel þar sem gist er í 2 nætur fyrir siglingu. Í siglingunni er komið við á þremur yndislegum eyjum í Karíbahafinu en þær eru: Curacao, Aruba og Grand Cayman, áður en haldið er aftur til Flórída og komið í land í Ft. Lauderdale.
Flogið er sama dag og skipið kemur í höfn frá Miami-flugvelli klukkan 17:15. Lent í Keflavík klukkan 05:55 morguninn eftir. 

Celebrity Ascent

Celebrity Ascent er fjórða og nýjasta skipið í nýjum Edge-flokki skipafélagsins og fór í sína fyrstu ferð haustið 2023. Þetta nýja skip mun breyta því hvernig við ímyndum okkur siglingar með farþegaskipum, meðal annars með nýju úrvali klefa sem standa gestum til boða.
Með Celebrity Ascent eru mörkuð tímamót í því hvernig við nálgumst skipahönnun. Hvert einasta skref við hönnunina, frá fyrstu skissum upp í sýndarveruleika, var unnið í þrívídd. Hönnunin á skipinu er í algjörum sérklassa, algjört augnakonfekt og hönnunarsprengja fyrir fagurkera. Töfrateppið (Magic Carpet) er skemmtileg útfærsla, líkt og það hangi utan á skipinu.
Gestum býðst með þessari hönnun áður óþekkta upplifun af nálægðinni við hafið og viðkomustaðina. Það á jafnt við um Edge-klefana með Infinite-veröndum og sundlaugaþilfarið þar sem útsýnið yfir hafið og viðkomustaðina er engu líkt.
Siglingin sameinar þægindi og lúxus með ævintýrum Karíbahafsins. Allt í einum vel skipulögðum og eftirminnilegum pakka. 

Sjá Flug- og siglingatöflur hér neðar á síðunni. 

Innifalið í pakkanum

fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu