Icelandair bætir
Tromsø við áætlun sína. Flogið verður tvisvar í viku á mánudögum og föstudögum frá 23. október til 29. mars 2027.
Tromsø er heillandi áfangastaður í hjarta norðurslóða, þar sem stórbrotin náttúra, norðurljós og miðnætursól skapa ógleymanlega upplifun. Borgin býður upp á blöndu af ævintýrum í arktískri náttúru og líflegu menningarlífi – fullkomin fyrir einstaka ferð.
- Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim.
- Athugið að verð frá og sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.