Pingdom Check

Copenhagen Airport, Kastrup (CPH)

Um flugvöllinn

Heimilisfang flugvallar: Copenhagen Airport, Kastrup, Copenhagen

Kaupmannahafnar-flugvöllur er í bænum Kastrup sem er 8 km (5 mílur) suðaustur af miðborg Kaupmannahafnar. Flugvöllurinn er aðalflugvöllur Skandinavíu og er jafnframt aðaltengiflugvöllur Skandinavíu til áfangastaða víðs vegar um heim.

Icelandair á Kastrup-flugvelli

Flugstöð (terminal): T3
Umboðsaðili: SGS (SAS Ground Services)
Innritun opnar: Almenn innritun sem og bag drop innritun er opin frá 04:30 – 22:00 alla daga
Innritun lokar: 40 mínútum fyrir brottför
Hliðið lokar: 15 mínútum fyrir brottför
Hraðleið í gegnum öryggisleit: Í boði

Sjálfsinnritunarvélar á flugvelli eru opnar fyrir viðskiptavini Icelandair.

Upplýsingar um betri stofu

SAS-setustofan sem er í flugstöð 3 er opin öllum farþegum Icelandair Saga Class og Saga Gold korthöfum. Opið frá 05:30 - 23:00. Aviator-setustofan er staðsett í flugstöð 2 og er opin Saga Silver korthöfum.