Pingdom Check

Persónuverndarskilmálar Icelandair

Icelandair virðir friðhelgi einkalífs og tekur verndun persónuupplýsinga þinna alvarlega.

Hér er samantekt á því hvernig Icelandair tekur á réttindum þínum til friðhelgi einkalífs, söfnunar, nýtingar og vinnslu persónuupplýsinga þinna:

  • Icelandair mun veita þér upplýsingar um þau gögn sem við söfnum og hvað við gerum við þau.
  • Icelandair mun gera ráðstafanir og beita aðferðum til þess að varðveita og vernda upplýsingarnar þínar.
  • Icelandair mun tryggja að persónuverndarréttindi þín séu virt og veita þér meira vald yfir þínum eigin upplýsingum.
  • Icelandair mun nota upplýsingarnar sem þú gefur okkur í þeim tilgangi sem lýst er í stefnu okkar um persónuvernd. Það felur meðal annars í sér að veita þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir og bæta upplifun þína hjá Icelandair.
  • Icelandair mun einnig nýta upplýsingarnar til að hjálpa okkur að skilja þig betur og til að bjóða þér viðeigandi tilboð.
  • Icelandair gæti haft gildar ástæður til að afla sér upplýsinga um hvað viðskiptavinir leita helst að, t.d. til að veita þeim sérsniðin tilboð, sem og að bjóða þeim vörur og þjónustur sem mæta þörfum þeirra betur.
  • Icelandair mun ekki senda þér markaðsefni ef þú lætur okkur vita að þú viljir ekki taka við slíku. Hins vegar munum við halda áfram að senda þér mikilvægar uppfærslur og upplýsingar um þjónustu eða vöru sem þú hefur keypt til þess að halda þér upplýstri/upplýstum um bókun, þjónustu eða ferðaáætlun þína.
  • Með því að smella á „Persónuverndarstefna Icelandair“ hér að neðan getur þú lesið persónuverndarstefnu okkar nánar. Með því að lesa persónuverndarstefnuna færðu þú betri skilning á því hvernig persónuupplýsingarnar þínar eru nýttar, hvaða tegundir upplýsinga við söfnum, hvernig við söfnum þeim, í hvaða tilgangi þær verða nýttar og með hverjum við deilum þeim.

Við munum gefa þér tiltekin dæmi um vinnslu á persónuupplýsingunum þínum. Vinsamlegast hafðu samband við okkur í tölvupósti með því að skrifa til [email protected] ef þú hefur frekari fyrirspurnir.

Hafðu í huga að samantektin hér að ofan og persónuverndarstefnan hér að neðan hafa ekki samningsgildi og eru því ekki hluti af samningi þínum við okkur með fyrirvara um réttindi þín samkvæmt gildandi lögum.