Sértilboð | Icelandair
Pingdom Check

Fjórar frábærar borgir á tilboði!

Icelandair og Arion bjóða Saga Club félögum sem safna Vildarpunktum með kreditkorti frá Arion frábært tilboð til Barcelona, Hamborgar, Stokkhólms og Washington.

Korthafar fá 15% afslátt með kóðanum: ARION ásamt því að fá tvöfalda Vildarpunkta og tvöföld Fríðindastig fyrir flugbókunina. Til þess að virkja afsláttinn þarf að setja inn kóðann í bókunarflæðinu.

Afslátturinn er í boði hvort sem greitt er með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum.

Bókunartímabil: 15. & 16. febrúar.

Ferðatímabil: maí & september, 2023.

Tilboðið er aðeins bókanlegt á vefnum og ekki er veittur afsláttur af sköttum og gjöldum og er tilboð á eftirfarandi fargjöldum: Economy Standard, Economy Flex, Saga Premium og Saga Premium Flex.

Athugið að Saga Club félagar safna einnig Vildarpunktum við það að greiða fyrir flugið með punktum. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig inn á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni sem kemur upp í lokaskrefi bókunar. 

Til þess að fá tvöfalda Vildarpunktar og Fríðindastig þarftu að muna eftir að setja Saga Club númerið þitt í bókun og að fluginu loknu færðu Vildarpunktana og Fríðindastigin á Saga Club reikninginn þinn ásamt tvöfölduninni.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Munurinn á Vildarpunktum og Fríðindastigum er sá að Vildarpunktar eru til að nota og Fríðindastig eru til að njóta.

Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug og aðrar vörur, svo sem veitingar um borð, þráðlaust net, hótel, bílaleigubíl og margt fleira.

Fríðindastig segja til um hvers konar aðild félagar eru með í Icelandair Saga Club og þá hvers konar fríðinda félagar njóta hjá Icelandair.

Saga Club félagar safna jafnmörgum Vildarpunktum og Fríðindastigum fyrir flug með Icelandair. Hér er hægt að sja hversu mikið félagar safna fyrir flug með Icelandair.