Sértilboð | Icelandair
Pingdom Check

Tilboð til fimm skemmtilegra borga!

Icelandair og Landsbankinn bjóða korthöfum með Vildarpunktasöfnun á kreditkortum frá Landsbankanum tilboð til þessara fimm spennandi borga: Amsterdam, Chicago, Prag, Stokkhólmur & Toronto.

Félagar fá 15% afslátt með afsláttarkóðanum: LB15 þegar bókað er á vefnum ásamt því að fá tvöfalda Vildarpunktar og tvöföld Fríðindastig fyrir flugbókunina á Economy Standard, Economy Flex, Saga Premium og Saga Premium Flex.

Bókunartímabil: 24. - 25. maí

Ferðatímabil: 1. september - 10. desember, 2023

Afslátturinn er í boði hvort sem greitt er með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum, en ekki er afsláttur af sköttum og gjöldum. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig inn á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni sem kemur upp í lokaskrefi bókunar.

Til þess að fá tvöfalda Vildarpunktar og Fríðindastig þarftu að muna eftir að setja Saga Club númerið þitt í bókun og að fluginu loknu færðu Vildarpunktana og Fríðindastigin á Saga Club reikninginn þinn ásamt tvöfölduninni.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Munurinn á Vildarpunktum og Fríðindastigum er sá að Vildarpunktar eru til að nota og Fríðindastig eru til að njóta.

Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug og aðrar vörur, svo sem veitingar um borð, þráðlaust net, hótel, bílaleigubíl og margt fleira.

Fríðindastig segja til um hvers konar aðild félagar eru með í Icelandair Saga Club og þá hvers konar fríðinda félagar njóta hjá Icelandair.

Saga Club félagar safna jafnmörgum Vildarpunktum og Fríðindastigum fyrir flug með Icelandair. Hér er hægt að sjá hversu mikið félagar safna fyrir flug með Icelandair.