Madonna di Campiglio. Einn af þekktustu skíðabæjum Ítala | Icelandair
Pingdom Check
FLUG
HÓTEL

Madonna di Campiglio

Innifalið í pakkanum

Icelandair logo
FLUG
Báðar leiðir
Flug báðar leiðirEconomy Standard
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
Sætaval
100% Vildarpunktasöfnun
HÓTEL
Hótel
hotel Created with Sketch. Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél
ANNAÐ
Flutningur á skíðabúnaði
Flutningur á skíðum innifalinn

Einn af þekktustu skíðabæjum Ítala

Flogið er með áætlunarflugi til og frá Verona. Flutningur á skíðum er innifalinn í verði. Akstur til og frá flugvelli er í boði gegn aukagjaldi fyrir farþega með flug og gistingu hjá Icelandair VITA. 

Fararstjóri VITA verður á svæðinu frá 20. janúar 2024. Fararstjórn á tímabilinu 20. desember 2023 - 20. janúar 2024 fer eftir bókunarstöðu og verður auglýst síðar. 

Til Madonna flykkist skíðafólk á öllum aldri hvaðanæva að úr heiminum á hverju ári. Bærinn stendur í dalnum Val Rendena í vesturhluta Trentino héraðsins rétt við rætur vestur-Dólómítanna.

Þetta fallega fjallaþorp liggur í rúmlega 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli og eru bæjarbúar um það bil þúsund talsins. Stutt er í skíðalyftur og kláfa úr miðbænum og liggja hæstu brekkurnar upp í allt að 2.600 metra hæð. Skíðabrekkurnar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum.

Í miðbænum mynda hótelin umgjörð um tvö torg, en það er skemmtilegt göngusvæði, með fjölda veitingastaða og verslana. 

Fjallasvæðið

Fjallasvæðið skiptist í fjögur mismunandi skíðasvæði sem hægt er að skíða á milli og getur fólk valið um svartar, rauðar eða bláar brekkur, allt eftir getu hvers og eins. Svæðin Pradalago og Grosté eru auðveldust á meðan svæðin Spinale og 5 Laghi fela í sér meiri áskoranir og ögranir.

Skíðasvæðið

Skíðasvæðið er gríðarstórt, samtals um 150 km af skíðabrautum. Lengsta einstaka skíðabrautin telur heila fimm kílómetra. Lyftur eru 59 talsins og flestar eru þær opnar frá kl. 8.30 til 16.30 alla daga.

Boðið er upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa. Hægt er að skíða frá Madonna yfir í þrjá nærliggjandi smærri skíðabæi, Folgarida, Marilleva og Pinzolo. Fyrrihluta dags og fram yfir miðjan dag er lífið í skíðabrekkunum en eftir að miðdegishvíldinni eða „síestunni“ lýkur og fram á kvöld færist líf í bæinn sjálfan. Miðbærinn er afar heillandi og gefa fjöldi skemmtilegra kaffihúsa og fjölbreyttra verslana honum skemmtilegan blæ.

Allir skíðafarþegar VITA fá 20% afslátt hjá Everest ferða- og útvistarverslun ef keyptur er skíðabúnaður eða skíðafatnaður, með því að framvísa staðfestingu á skíðabókun frá VITA fyrir veturinn 2023-2024. Verslunin er staðsett í Skeifan 6, Reykjavík.

Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu