Flug með Icelandair: Meira en bara ferðalag
Rífleg farangursheimild
Skoða nánar
Afþreying fyrir alla aldurshópa
Skoða nánar
Icelandair flug til Madríd - frá 90.261 kr.
Reykjavík (KEF)-
Madríd (MAD)Reykjavík (KEF)-
Madríd (MAD)Skoðaðu okkar lægsta verð árið 2026 og síðar
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð | |
|---|---|---|---|---|---|
| Reykjavík (KEF) | Madríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 09. apr. 2027 - 16. apr. 2027 | Frá 54.741 kr. Síðast skoðað: 37 mínútur síðan | |
| Reykjavík (KEF) | Madríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 03. maí 2027 - 07. maí 2027 | Frá 56.367 kr. Síðast skoðað: 11 klst. síðan |

Það liggur kannski beint við fyrir flestum að heimsækja Madríd yfir sumartímann, en sumum finnst hitinn yfirþyrmandi og mæla frekar með tímabilinu frá mars fram í maí eða september og nóvember.
En það ber líka að nefna að Madríd er mikil menningarborg allt árið um kring og því gæti verið ráð að kanna hvaða hátíðir og viðburðir eru í boði á hverjum árstíma og velja ferðatímann í samræmi við það.
Þar að auki má segja að straumur ferðamanna til Spánar yfir sumartímann hafi minni áhrif á Madríd en borgir út við ströndina. Fyrir þau sem sækjast ekki sérstaklega eftir strandlífi gæti höfuðborgin því verið góður kostur.
Með Icelandair VITA er hægt að bóka pakkaferð til Madrid.
Það er auðvelt að komast leiðar sinnar í Madríd þökk sé einföldu og skilvirku almenningssamgöngukerfi. Í borginni eru neðan- og ofanjarðarlestar auk strætisvagna.
Neðanjarðarlestin gengur milli sex að morgni og hálftvö um eftirmiðdaginn á degi hverjum.
Strætisvagnarnir eru almennt ekki alveg jafn fljótlegir, en þeir eru ódýrari kostur.
Ýmis leigubílakerfi eru starfrækt í borgini, þar á meðal Uber, svo að ferðalangar hafa fjölmarga valkosti.


Madríd hefur getið sér gott orð fyrir frábæra matargerð. Viltu ævintýri fyrir bragðlaukana? Farðu í leiðangur um hina líflegu tapasbari La Latina-hverfisins.
Á götunni Calle de la Baja finnur þú alvöru tapasúrval, allt frá hefðbundnum réttum til tapas í nýtískulegum búningi. Meðal annarra álitlegra hverfa þegar kemur að kvöldmatnum má nefna Malasaña, Chueca og Salamanca.
Leitaðu eftir einkennisrétti borgarinnar, cocido madrileño, sem er kássa úr kjúklingabaunum. Þetta er saðsamur réttur með fullt af kjöti og grænmeti.
Markaðir og mathallir bjóða einnig upp á ljúffenga rétti. Þar má nefna Mercado de San Miguel.
Platea í hverfinu Salamanca er glæsilega endurppgert leikhús sem er heimastaður framúrskarandi úrvals af veitingastöðum og börum. Þar er einnig svið þar sem oft fara fram spennandi tónleikar.
Reyndu að fá sem mestan svefn áður en flugvélin snertir jörð í Madríd; þessi borg vakir helst frameftir og okkur grunar að þú viljir ekki missa af því. Madríd er lífleg menningarborg þar sem ferðalangar geta virt fyrir sér list á heimsmælikvarða, fjöruga flamenco-dansa og þrumuskot á fótboltavellinum.
Farðu í skoðunarferð um hina dýrðlegu konungshöll, Palacio Real, virtu fyrir þér stórkostleg listaverk á Museo del Prado eða Museo Reina Sofia. Á því fyrrnefnda er m.a. að finna fjölda verka eftir Picasso, Goya, Dalí og Velázquez.
Madríd býr yfir fjölda fagurra torga þar sem kjörið er að setjast og sötra sangríu. Plaza Mayor, Plaza de Cibeles og Puerta del Sol eru öll góðir valkostir.
Ef fótboltinn er það sem hrífur, heldur þú auðvitað beint á grundir Real Madrid: Santiago Bernabéu leikvanginn. Fagnaðu með 80.000 aðdáendum í stúkunni, eða farðu í skoðunarferð um svæðið.
