Flug til Nuuk með Icelandair - verð frá 69.965 kr.*

Afsláttarkóði

Flug til Nuuk á næstu þremur mánuðum

kr.

Reykjavík (KEF)-

Nuuk (GOH)
04. sep. 2026 - 11. sep. 2026
Frá
77.154 kr.
Síðast skoðað: 2 dagar síðan
Báðar leiðir
Economy

Reykjavík (REK)-

Nuuk (GOH)
04. sep. 2026 - 07. sep. 2026
Frá
71.844 kr.
Síðast skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
Economy

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Planaðu ferðalag til Nuuk með góðum fyrirvara

kr.
Planaðu ferðalag til Nuuk með góðum fyrirvara
Frá
Til
Fargjald
Dagsetningar
Verð
Reykjavík (KEF)Nuuk (GOH)Báðar leiðir
/
Economy
16. okt. 2026 - 23. okt. 2026

Frá

69.965 kr.

Síðast skoðað: 2 dagar síðan

Reykjavík (KEF)Nuuk (GOH)Báðar leiðir
/
Economy
21. sep. 2026 - 24. sep. 2026

Frá

144.044 kr.

Síðast skoðað: 1 dagur síðan

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalag til Nuuk

Fuglasýn yfir borgina Nuuk við sólsetur

Verið velkomin til Nuuk!

Nuuk er höfuðborg Grænlands, þar mætast verslun og menning fersku lofti og mikilfenglegu landslagi. Nuuk er ein af minnstu höfuðborgum í heimi, en þar búa um 20.000 manns. Borgin er staðsett yst í stórum firði í suðvestur Grænlandi. Fræga Sermitsiaq fjallið er staðsett á eyju í firðinum og sést nær alls staðar í borginni.

Í Nuuk er að finna hugguleg kaffihús og veitingastaði, söfn, verslunarmiðstöð og hótel. Saga borgarinnar er merkileg og menningin þar er rík, og stutt er í náttúruna fyrir ævintýraþyrsta.

Upplifanir í Nuuk

Nafn borgarinnar Nuuk þýðir "tangi" á grænlensku, en hún er nefnd svo vegna legu sinnar á tanga tveggja djúpra fjarða sem skerast inn í landið. Því er tilvalið að halda frá borginni í ýmsa leiðangra. Ferðir um fjörðinn eru vinsælar, og einnig hvalaskoðanir þar sem ferðalangar komast á sumrin í návígi við hnúfubaka og hrefnur. Einnig er farið í veiðiferðir sem enda á afskekktum veitingastað þar sem ferðalöngum er boðið upp á að láta elda aflann.

Þyrluferðir eru vinsælar um ísilagt umhverfið og upp að rústum forna byggða norræna manna. Þá er líka boðið upp á bátsferðir að þessum fornu byggðum.

Fuglasjónarhorn af ströndinni í Nuuk, þar sem land mætir sjó
Mynd ofan frá af Nuuk á Grænlandi með litríkum myndum

Menning og list í Nuuk

Listasafnið í Nuuk geymir ýmiss merk verk, bæði gömul og ný. Þar eru líka til sýnis skurðverk úr tálgustein, beinum, viði og vígtönnum. Safnið býður upp á listagöngu þar sem farið er um stræti borgarinnar og gert grein fyrir útiverkum sem þar er að finna á milli safnsins og gömlu nýlenduhafnarinnar.

Margar búðir bjóða upp á gullfalleg handverk heimamanna, og ýmsar merkilegar sýningar eru haldnar í menningarmiðstöðinni "Katuaq".

Söfn og menning

Við mælum með því að gera sér ferð í þjóðminjasafn Grænlands. Safnið er að finna í gamla bænum og veitir gestum heildstæðan skilning á fornleifum landsins, sögu, íbúum, list og iðnaði síðastliðin 4500 ár. Í nágrenni við þjóðminjasafnið er listasafnið í Nuuk (Nuutoqaq), en þar eru haldnar sýningar sem beina kastljósinu að list heimamanna, auk sögu og iðnar.

Til þess að kynnast sögu svæðisins enn frekar er hægt að fara í bátsferð til yfirgefinna byggða í Qoornoq og Kagneq. Qoornoq er lítil falleg eyja í nágrenni Nuuk í firðinum. Þar var eitt sinn blómleg byggð sem var svo yfirgefin á sjöunda áratugi síðustu aldar þegar íbúar hennar fluttust til höfuðborgarinnar. Fyrrum íbúar byggðarinnar nota enn húsin þar sem sumarbústaði.

Götumynd af litríkri götu í Nuuk, tekin á sólríkum degi
Höfnin í Nuuk mynduð með snæviþöktum fjöllum í bakgrunni

Nuuk á sumrin

Það er enginn slæmur tími til þess að heimsækja Nuuk. Hins vegar er vinsælast að ferðast til borgarinnar á sumrin (júní til september). Þá er veðrið best og mest um að vera.

Á sumrin hækkar hitastigið og dýralífið lætur oftar sjá sig. Einnig er þá besti tíminn til þess að ferðast um fjörðinn, fara á kajaka og veiða.

Hins vegar er ekki heldur slæmt að ferðast til borgarinnar á vorin eða haustin. Þá er minna af ferðamönnum og verð á flugi og gistingum er oft hagstæðara.

Nuuk á veturna

Þrátt fyrir það að hitastigið sé oft undir frostmörkum á veturna er í rauninni jafn vinsælt að heimsækja borgina að vetri til og um sumar. Á veturna eru norðurljósin aðal aðdráttaraflið, og títt er hægt að sjá þau frá september til apríl.

Vinsælt er að fara á skíði eða í gönguferðir á veturna. Sisorarfiit skíðalyftan býður upp á spennandi brekkur, en einnig er nóg af fáfarnari svæðum þar sem hægt er að renna sér.

Þrátt fyrir hitastigið er Nuuk ekki jafn köld og maður myndi búast við, en það er vegna lágs loftraka. VIð bjóðum upp á flug til Nuuk allan ársins hring, og því býðst viðskiptavinum okkar að ferðast til borgarinnar hvenær sem þeim sýnist.

Snæþöktu fjöllin nálægt Nuuk á Grænlandi
Fuglasýn yfir Nuuk á Grænlandi, þar sem hægt er að sjá hina ýmsu byggingarstíla um allan bæinn

Ferðast fótgangandi

Nuuk er ein minnsta höfuðborg í heimi þegar litið er til höfðatölu, og auðvelt er að komast á milli staða fótgangandi í miðbænum. Miðbærinn er heldur sléttur og því ekki krefjandi til göngu, en þegar komið er út fyrir hann þarf að ganga upp fleiri brekkur.

Skemmtilegt er að ganga um sjávarbakkann við gömlu nýlenduhöfnina Kolonihavn og stræti gamla bæjarins en þar er að finna litrík norræn hús. Í Myggedalen er helsta útsýnið af borginni og sjónum, í mikilfenglegu umhverfi sínu.

Samgöngur í Nuuk

Vinsælt er að ferðast með strætó í Nuuk. Strætókerfi borgarinnar heitir Nuup Bussii, en með strætisvögnum er hægt að komast um nær alla borgina á lágu verði. Hægt er að borga með reiðufé um borð fyrir staka ferð, eða kaupa 10 skipta kort á netinu, í sjálfsafgreiðsluvélum eða um borð. Hægt er að nálgast tímatöflu í hverju strætóskýli eða á netinu.

Það eru leigubílar í Nuuk, en þeir eru dýrasti valkosturinn. Einnig er hægt að fara um borð í almenningsbáta sem bjóða upp á gott útsýni af firðinum.

Mynd ofan af Nuuk, þar sem ströndin mætir djúpbláu vatninu, þar sem bátur siglir fram hjá

 

Spurt og svarað

Gagnlegar upplýsingar fyrir ferðalanga til Nuuk

Hvaða flugvelli er flogið frá til Nuuk á Grænlandi?

Flogið er frá Keflavíkurflugvelli til Nuuk á Grænlandi allan ársins hring.

Hve langt er frá Íslandi til Nuuk?

Grænland er í um 1200 kílómetra fjarlægð frá Íslandi, og flugtíminn er í kringum 3 klukkutímar.

Hvernig er farið frá flugvellinum í Nuuk í bæinn?

Flugvöllurinn í Nuuk (GOH) er aðeins í 7,5 kílómetra fjarlægð frá miðbæ Nuuk. Það er því auðvelt að komast í bæinn, en bílferðin tekur oftast um 10 mínútur; það fer eftir umferðarþunga. Einnig gengur þaðan strætó, og ferðalangar geta líka leigt sér bílaleigubíl á flugvellinum.

Er hægt að ferðast til annara staða á Grænlandi frá Nuuk?

Þegar búið er að skoða Nuuk er hægt að fljúga til annara áfangastaða með innanlandsflugi hjá samstarfsaðila okkar Air Greenland. Einnig er hægt að ferðast um strandlengjuna með bát eða skemmtiferðaskipum. Þú kemst því víða um Grænland frá Nuuk.

Þarf ég vegabréfsáritun til þess að ferðast til Nuuk?

Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til þess að ferðast til Grænlands.

Býður Icelandair upp á pakkaferðir til Nuuk?

Icelandair býður upp á pakkaferðir til Nuuk, en þá eru bæði flug og gisting innifalin. Einnig bjóðum við upp á að bæta við pakkann borgargöngu með leiðsögn.