Fljúgðu með Icelandair til Grænlands - verð frá 69.895 kr.*
Flug á næstu þremur mánuðum
Reykjavík (KEF)-
Nuuk (GOH)Reykjavík (KEF)-
Nuuk (GOH)Reykjavík (KEF)-
Kulusuk (KUS)Reykjavík (KEF)-
Kulusuk (KUS)Reykjavík (KEF)-
Kulusuk (KUS)Reykjavík (KEF)-
Kulusuk (KUS)Reykjavík (REK)-
Nuuk (GOH)Reykjavík (REK)-
Nuuk (GOH)Reykjavík (KEF)-
(JJU)Reykjavík (KEF)-
(JJU)Reykjavík (KEF)-
(JJU)Reykjavík (KEF)-
(JJU)* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Planaðu fram í tímann! Bókaðu flug til Grænlands með Icelandair
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð |
|---|---|---|---|---|
| Reykjavík (KEF) | Nuuk (GOH) | Báðar leiðir / Economy | 02. okt. 2026 - 05. okt. 2026 | Frá 69.895 kr. Síðast skoðað: 5 klst. síðan |
| Reykjavík (KEF) | Nuuk (GOH) | Báðar leiðir / Economy | 09. nóv. 2026 - 13. nóv. 2026 | Frá 69.895 kr. Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
| Reykjavík (KEF) | Nuuk (GOH) | Báðar leiðir / Economy | 21. sep. 2026 - 24. sep. 2026 | Frá 130.294 kr. Síðast skoðað: 2 dagar síðan |
| Reykjavík (REK) | Nuuk (GOH) | Báðar leiðir / Economy | 04. des. 2026 - 11. des. 2026 | Frá 69.895 kr. Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
| Reykjavík (KEF) | (JJU) | Báðar leiðir / Economy | 12. sep. 2026 - 15. sep. 2026 | Frá 102.084 kr. Síðast skoðað: 12 klst. síðan |
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Ferðalög til Grænlands

Icelandair flug til Grænlands
Icelandair býður upp á flug til Grænlands frá Íslandi. Flogið er til Grænlands frá Keflavíkurflugvelli.
Með Icelandair er hægt að bóka miða til nokkurra áfangastaða á Grænlandi:
- Flug til Nuuk (Suðvestur Grænland) Flug frá Íslandi til höfuðborgar Grænlands tekur um 3 klukkutíma. Flogið er allan ársins hring.
- Flug til Ilulissat (Vestur Grænland) Flogið er beint til þessa vinsæla áfangastaðs á Grænlands frá júní til og með september. Flugið frá Íslandi tekur um 3 og hálfan klukkutíma.
- Flug til Qarqortoq (Suður Grænland) Flug frá Íslandi til suður Grænlands tekur um 3 klukkutíma. Flugvöllurinn í Qaqortoq (JJU) opnar í apríl 2026, og kemur í stað Narsarsuaq flugvallarins (UAK). Icelandair flýgur til suður Grænlands frá júní til og með september. .
- Flug til Kulusuk (Austur Grænland) Stysta flug okkar til Grænlands er til Kulusuk á austur Grænlandi, og tekur um 2 klukkutíma. Flogið er frá mars til og með september.
Frekari upplýsingar um flugáætlun okkar til Grænlands er að finna hér: Flugáætlun.
Flugvélar okkar sem fljúga til Grænlands
Það er auðvelt að komast í návígi við stórfengleika Grænlands með Icelandair. Nú þegar nýr flugvöllur hefur opnað í Nuuk (GOH), fljúgum við 160 sæta Boeing MAX 8 vélunum okkar til Grænlands allan ársins hring.
Aðrir flugvellir en sá sem er í Nuuk eru smærri, með stuttum flugbrautum. Til þeirra flugvalla fljúgum við því De Havilland Canada (DHC) Dash 400 og 200 vélunum okkar. Dash vélarnar eru smærri, og því er þjónustan um borð frábrugðin þeirri sem við getum boðið upp á í Boeing og Airbus vélunum okkar. Einnig geta reglur um farangur verið frábrugðnar í smærri vélunum.


Flogið til Grænlands að sumri til
Þær árstíðir sem laða flesta ferðamenn til Grænlands eru sumar- og vetrarmánuðirnir.
Að sumri eru dagarnir langir og þá gefst besta færið til þess að virða fyrir sér stórfenglega náttúru Grænlands. Við fljúgum til Nuuk, Ilulissat, Kulusuk og Qaqortoq á sumrin.
Veðurfar er milt á sumrin á Grænlandi, en þá er boðið upp á ýmsar ógleymanlegar upplifanir á borð við göngu- og bátaferðir. Þá er hægt að fylgjast með hafísnum sigla inn firðina í bjarma miðnætursólarinnar og komast í návígi við dýralífið, en á Grænlandi er að finna hvali, sauðnaut og margt fleira. Grænland hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðalanga á sumrin.
Ráð fyrir vetrarheimsókn til Grænlands
Á Grænlandi varir veturinn venjulegt frá október til mars. Þá kólnar veðrið og umhverfið verður snæviþakið; en eins og sagt er, það er ekkert veður slæmt ef maður klæðir sig rétt.
Margt ef því sem við erum vön á veturna hér heima á einnig við á Grænlandi, næturnar verða lengri og norðurljósin láta oft á sér kræla.
Hins vegar eru ýmsir landshlutar Grænlands á veturna sem eru aðeins aðgengilegir á hundasleðum, bátum eða snjósleðum. Þeir sem heimsækja Grænlands í vetrarríki geta átt von á ógleymanlegri ferð.


Pakkaferðir til Nuuk
Grænland er bæði stórt og að miklum hluta ótamið, svo það getur verið erfitt að vita hvernig eigi byrja að skipuleggja ferð þangað. Engar áhyggjur, við getum aðstoðað.
Icelandair býður upp á pakkaferðir sem gera ferðina til Grænlands áreynslulausa. Ferðalangar geta þá keypt í einum pakka flug og gistingu, í höfuðborginni, bæði í Nuuk og á fleiri stöðum á Grænlandi. Boðið er upp á ýmissa valmöguleika, og því ættu allir að geta fundið gistingu við sitt hæfi. Þegar þú kaupir pakkaferð frá Icelandair VITA býðst þér einnig að bæta upplifunum við ferðina.
Ferðast um Grænland
Á Grænlandi eru engar lestir né vegir á milli flestra byggða, þar sem vegalengdin á milli þeirra getur verið gríðarleg. Aðal samgöngumátarnir eru flugvélar, bátar, þyrlur og hundasleðar. Ódýrasti valkosturinn er sjávarleiðin með ferju, og einnig er boðið upp á skemmtiferðaskip sem ferðast með farþega um allt landið.
Einnig er vinsælt að nýta flugsamgöngur til þess að komast á milli staða, bæði vegna þeirra þæginda og hraða sem þær bjóða upp á, og líka útsýnisins sem sá ferðamáti býður upp á af landinu. Þyrluferðir bjóða upp á mikið sjónarspil þegar flogið er yfir snæviþakið landið. Þá er ógleymanleg upplifun að ferðast á hundasleða með leiðsögumanni.

Spurt og svarað
Gagnlegar upplýsingar fyrir ferðalanga til Grænlands
Hvað kostar að ferðast til Grænlands?
Verð á flugmiðum til Grænlands veltur á ýmsum þáttum, til dæmis hvenær á árinu er flogið og með hve miklum fyrirvara miðinn er bókaður. Ódýrast er að ferðast til Grænlands ef miðarnir eru bókaðir með góðum fyrirfara, og ef ferðast er seint eða snemma að vori eða hausti, þar sem eftirspurn er minni á þeim tímum. Þú getur notað leitarvélina og spjöldin hér fyrir ofan til þess að finna okkar besta verð til Grænlands.
Eru mörg flugfélög sem fljúga til Grænlands?
Nei, Icelandair er eitt þeirra fáu flugfélaga sem fljúga til Grænlands í millilandaflugi.
Hve langt er frá Íslandi til Grænlands?
Grænland er í um 1200 kílómetra fjarlægð frá Íslandi, og flugtíminn er í kringum 3 klukkustundir.
Hvaða gjaldmiðil er notast við á Grænlandi?
Gjaldmiðillinn á Grænlandi eru danskar krónur (DKK), og ef fyrirhugað er að ferðast til minni byggða á Grænlandi er hollráð að hafa reiðufé með í för.
Tekið er við flestum helstu greiðslukortum í hraðbönkum á Grænlandi og hægt er að finna hraðbanka í Nanortalik, Narsaq, Qaqortoq, Paamiut, Nuuk, Maniitsoq, Sisimiut, Kangerlussuaq, Aasiaat, Qasigiannguit, Ilulissat, Qeqertarsuaq, Uummannaq, Upernavik, and Tasiilaq.
Er öruggt að ferðast til Grænlands?
Já það er öruggt að ferðast til Grænlands. Heimamenn taka vel á móti ferðalöngum.
Hvaða tungumál er talað á Grænlandi?
Á Grænlandi er töluð Grænlenska, eða Kalaallisut, sem er tungumál innfæddra í landinu. Einnig tala Grænlendingar flestir dönsku og ensku.
Þarf ég vegabréfsáritun til þess að ferðast til Grænlands?
Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til þess að ferðast til Grænlands.
Hvernig föt þarf að hafa með í för?
Hvers konar fatnað ferðalangar þurfa að hafa með sér þegar ferðast er til Grænlands fer eftir árstíma, hvert förinni er heitið á Grænlandi, hvað sé fyrirhugað að gera, og veðurspá.
Ef ætlunin er að fara í gönguferðir þarf að klæðast nokkrum lögum af fatnaði svo hægt sé að fækka eða fjölga þeim eftir aðstæðum. Gott er að hafa með sér:
- Vatnshelda og góða skó, veðrið getur breyst á augnabliki og oft er kaldur vindur.
- Hlý föt sem hægt er að klæðast ef hitastig lækkar, auk húfu og vettlinga.
- Á sumrin getur sólin skinið sterkt, sérstaklega þegar hún endurspeglast af vatni, svo gott er að hafa með sér sólgleraugu, húfu með sólskyggni og sólarvörn.
- Flugunet og flugnafælu er gott að hafa með sér, sérstaklega um hásumar (júlí og ágúst), en moskítóflugur eru á Grænlandi. Þá þurfa þeir sem hafa ofnæmi fyrir flugnabitum að hafa með sér smyrsli eða ofnæmislyf sem draga úr bólgu og kláða sem fylgja þeim.
Hve stórt er Grænland?
Grænland er í kringum 2,2 milljón ferkílómetrar á stærð. Á kortum virðist Grænlands oft stærra en það raunverulega er, en raunstærð þess er samt gríðarleg; flatarmál Grænlands er rúmlega 21 sinnum stærra en flatarmál Íslands!
Er Grænland í Norður-Ameríku?
Landfræðilega tilheyrir Grænland heimsálfunni Norður-Ameríku. Hins vegar ná bæði stjórnmálaleg og menningarleg tengsl á milli Grænlands og Evrópu meira en þúsund ár aftur í tímann, en landið var byggt af norrænum mönnum á 10. öld. Grænland er í dag hluti af danska konungsríkinu.
Hvað búa margir á Grænlandi?
Á Grænlandi búa um 56.000 manns (2025). Í stærstu borg Grænlands, höfuðborginni Nuuk, búa um 20.000 manns. Gott er að hafa í huga þennan íbúafjölda þegar ferðast er til landsins, en hann getur haft áhrif á þjónustu og því þarf ferðafólk að vera sveiganlegt fyrir því.



