Flug til Qaqortoq með Icelandair - verð frá 138.974 kr.*

Afsláttarkóði

Flug til Qaqortoq á næstu þremur mánuðum

kr.

Reykjavík (KEF)-

(JJU)
04. ágú. 2026 - 11. ágú. 2026
Frá
151.974 kr.
Síðast skoðað: 16 klst. síðan
Báðar leiðir
Economy
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Planaðu ferðalag til Qaqortoq með góðum fyrirvara

kr.
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalag til Qaqortoq

Brattahlíð, Sögulegi staðurinn þar sem Eiríkur rauði byggði á Grænlandi

Verið velkomin til suður Grænlands!

Icelandair býður upp á beint flug til fjögurra áfangastaða á Grænlandi. Flugtíminn frá Keflavíkurflugvelli (KEF) til Qaqortoq (JJU) á suður Grænlandi tekur um þrjá klukkutíma. Áætlað er að flugvöllurinn í Qaqortoq opni í apríl 2026 og kemur hann í stað flugvallarins í Narsarsuaq (UAK), sem er 59 kílómetrum norðaustan við hann.

Íbúafjöldinn í Qaqortoq er um 3000 manns, og er bærinn stærsta byggð suður Grænlands, og því tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja heimsækja svæðið. Suðurhluti landsins ber nafnið Grænland með réttu, og er svæðið þekkt sem garður Grænlands. Þar er að finna dali þakna í blómum, mildara veðurfar, og kindur á beit í haga. Svæðið er ríkt af sögu bæði norrænna manna og Inúíta.

Spennandi í Qaqortoq

Þökk sé litríkum húsum og fallegu umhverfi er Qaqortoq oft talin meðal fallegustu bæja Grænlands. Hægt er að komast leiða sinna fótgangandi í bænum, en flesta hápunkta hans er að finna í miðbænum og við höfnina. Þegar gengið er um bæinn er hægt að virða fyrir sér ýmiss útilistaverk, en verkefnið "Maðurinn og steininn" (e. Stone and Man) er samansafn högglistaverka eftir 40 listamenn. Mörg verkanna eru hoggin í náttúrulegt berg sem þegar stóð á svæðinu. Þau sýna hvali, innfædda, og önnur þjóðleg mótíf sem ljá þeim tímalausan blæ.

Aðrir hápunktar eru firmað "Great Greenland", sem framleiðir föt út feld sela, hreindýra og sauðnauta, og Qaqortoq safnið sem hýsir sýningar hefðbundinna skurðverka frá svæðinu sem kallast tupilaks. Þá er einnig hægt að fara í bátsferð að Hvalsey kirkjunni sem byggð var á 12. öld, sen þar eru best varðveittu minjar norrænna manna á Grænlandi.

Litríku húsin í Qaqortoq liggja meðfram flóanum
Stytta af víkingalandnema stendur á dramatískum hátt á fjalli á Grænlandi og horfir yfir landslagið

Saga og náttúra

Aðeins á suður Grænlandi er að finna útbreiddan landbúnað á norðurheimskauti, og byggir sú hefð á rústum byggða norrænna manna á svæðinu, en þær rústir eru enn sjáanlegar í dag.

Vilji menn heimsækja sveitabæi á suður Grænlandi er best að byrja á Qassiarsuk og Igaliku, en þar í kring eru mörg bú sauðfjárbænda. Boðið er upp á ýmsar upplifanir í kringum landbúnað frá júní til september. Ljósmyndarar gætu ekki óskað sér betra myndfæri en kind á beit í þessum mikilfenglegu aðstæðum, með há fjöll og hafís í bakgrunni.

Í Qassiarsuk var aðal byggð norrænna manna en þar var bær Eiríks rauða Þorvaldssonar, Brattahlíð. Rústir bæjarins eru vinsæll ferðamannastaður, en þar er nú búið að endurreisa torfbæ hans og Þjóðhildarkirkju.

Upplifanir

Margir leiðsögumenn eru á suður Grænlandi, og með hjálp þeirra geta ferðalangar átt ógleymanlegar stundir á svæðinu. Vinsælt er að fara í gönguferðir, veiðiferðir, heimsókn á sveitabæi, og kanna rústir norrænna byggða.

Til þess að upplifa eitthvað einstakt er tilvalið að fara í bátsferð frá Qaqortoq að náttúrulaugum eyjarinnar Uunartoq og baða sig innan um borgarísjakana. Fyrir þá sem þyrstir í meiri hasar er boðið upp á kajakferðir í firðinum, og krefjandi klettaklifur.

Icelandair flýgur frá Íslandi til Qaqortoq frá júní til og með september, þegar dagarnir eru langir og veðurfarið er mildast. Þetta er vinsæll tími hjá ferðamönnum, þannig að þá er nóg um að vera á svæðinu.

Söguleg kirkja í Qaqortoq, skærlitum og rauðum lit, á Grænlandi

 

Spurt og svarað

Hvernig finnur maður ódýrt flug til Qaqortoq?

Icelandair býður reglulega upp á ódýrt flug til Qaqortoq. Til þess að finna okkar besta verð er mikilvægt að bóka flugið með góðum fyrirvara, og ferðast frekar snemma eða seint að sumri, þegar eftirspurn er minni.

Hve langt er frá Íslandi til Qaqortoq?

Flugið frá Keflavíkurflugvelli (KEF) til Qaqortoq (JJU) á suður Grænlandi tekur að jafnaði aðeins um þrjá tíma.

Þarf ég vegabréfsáritun til þess að ferðast til Qaqortoq?

Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til þess að ferðast til Grænlands.

Er flugvöllurinn í Qaqortoq nýr?

Qaqortoq-flugvöllur (JJU) er nýr flugvöllur á Suður-Grænlandi. Flugvöllurinn opnaði í apríl 2026. Við fljúgum fjórum sinnum í viku til Qaqortoq og höfum hætt flugi til Narsarsuaq (UAK).