Stefna félagsins í samfélagsábyrgð byggir á fjórum Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna en þau hafa markað sér sess sem sameiginlegt tungumál stjórnvalda og atvinnulífs til þess að stuðla í sameiningu að sjálfbærri framtíð.
Það er stefna Icelandair að lágmarka umhverfisáhrif frá starfseminni og bæta stöðugt árangur í umhverfismálum.
Icelandair er stoltur styrktaraðili margra viðburða og verkefna víðs vegar um heiminn. Hjá félaginu er starfrækt styrktarnefnd sem fer yfir allar umsóknir sem berast. Til að stuðla að því að allar umsóknir hljóti sanngjarna afgreiðslu þá fer styrktarnefndin aðeins yfir þær umsóknir sem berast í gegnum formið á vefsíðu okkar. Beiðnir sem berast með tölvupósti, símtölum, bréfpósti eða munnlega eru ekki teknar fyrir af nefndinni.
Icelandair býður upp á aðgengilega lausn til þess að áætla þann útblástur koltvísýrings sem hlýst af fluginu þínu. Við getum aðstoðað þig við að styrkja verkefni sem sporna gegn hnattrænni hlýnun.