Pingdom Check

Farþega meinað um far

Kynntu þér réttindi þín.

Réttur á endurgreiðslu

Ef þér hefur verið meinað um far, og þú hefur ekki hug á að endurbóka, geturðu afpantað flugið og óskað eftir endurgreiðslu á öllum ónýttum flugleggjum á miðanum þínum.

Réttur til að endurbóka

Ef þér er ekki hleypt um borð í vélina, geturðu óskað eftir sæti/sætum í næsta Icelandair-flugi til áfangastaðarins, þar sem tilhögun ferðar er sambærileg og gegn því skilyrði að það séu laus sæti um borð. Vinsamlegast hafðu samband við fulltrúa Icelandair á flugvellinum, eða hafðu samband við þjónustuverið okkar, til þess að endurbóka flugið þitt.

Ef þú skráðir símanúmer og/eða netfang í bókunina þína, verðurðu látin/n vita um breytingar á tilhögun ferðarinnar. Ef þú hefur ekki skráð þessar upplýsingar, geturðu alltaf skoðað ferðaáætlunina á vefsíðu Icelandair.

Réttur á þjónustu

Máltíðir

Ef þér hefur verið meinað um far, átt þú rétt á þjónustu sem Icelandair sér þér fyrir meðan þú bíður eftir endurbókuðu flugi. Hún samanstendur af máltíð og/eða drykkjum, auk tveggja símtala. Vinsamlegast hafðu samband við fulltrúa Icelandair á flugvellinum til þess að nálgast inneignarnótu fyrir máltíðum.

Stundum gæti reynst ómögulegt að gefa út inneignarnótur, vegna þess fjölda farþega sem verður fyrir röskun á flugi samtímis. Í þessum tilfellum, biðjum við þig vinsamlegast að halda til haga öllum sundurliðuðum kvittunum og senda okkur þær til endurgreiðslu (veldu Seinkun á flugi / flugi aflýst). Icelandair endurgreiðir sanngjarnan kostnað, í hlutfalli við lengd biðtíma.

Gisting

Ef okkur tekst ekki að endurbóka flug fyrir þig á þeim degi sem þú hefðir átt að fljúga, og þú kemst ekki heim, átt þú rétt á gistingu. Vinsamlegast hafðu samband við fulltrúa okkar á flugvellinum til að nálgast inneignarnótur fyrir hótel.

Stundum gæti reynst ómögulegt að gefa út inneignarnótur fyrir hótel, vegna þess fjölda farþega sem verður fyrir röskun á flugi samtímis. Í þessum tilfellum, biðjum við þig vinsamlegast að halda til haga öllum sundurliðuðum kvittunum og senda okkur þær til að fá endurgreitt (veldu Seinkun á flugi / flugi aflýst). Icelandair endurgreiðir eðlilegt verð fyrir tveggja manna hótelherbergi.

Þú átt einnig rétt á því að þér sé greiddur samgöngukostnaður vegna ferða milli flugvallar og gististaðar. Ef okkur tekst ekki að verða þér úti um inneignarnótu fyrir samgöngum, vinsamlegast haltu til haga öllum sundurliðuðum kvittunum og sendu okkur þær til að fá endurgreitt (veldu Seinkun á flugi / flugi aflýst). Icelandair lítur svo á að eðlilegur samgöngukostnaður samsvari andvirði lestarmiða, ferða með flugrútu og/eða eldsneytiskostnaðar.

Réttur til bóta

Ef þér hefur verið meinað um far, án þess að fyrir því liggi réttmætar ástæður, áttu rétt á bótum. Upphæð bótanna fer eftir lengd flugsins og, þar sem við á, endurbókun þinni.

Teljir þú að þú eigir rétt á bótum biðjum við þig vinsamlegast að senda okkur kröfu í gegnum vefsíðu Icelandair.

Upplýsingar um þær eftirlitsstofnanir sem falið er að hafa eftirlit með réttindum flugfarþega er hægt að nálgast á Europa.eu.