10 Vildarbörn á leið í draumaferðina með fjölskyldu sína á vegum Icelandair | Icelandair
Pingdom Check
04/28/2009 | 12:00 AM

10 Vildarbörn á leið í draumaferðina

Á sumardaginn fyrsta, var í tólfta sinn úthlutað styrkjum úr sjóðnum Vildarbörn, styrktarsjóði Icelandair og viðskiptavina félagsins.
Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.
Nú hafa 250 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Að þessu sinni hlutu 10 börn og fjölskyldur þeirra styrk úr sjóðnum.
Í styrknum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa mörg barnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með þrennskonar hætti. Í fyrsta lagi með beinu fjárframlagi Icelandair. Í öðru lagi með frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af vildarpunktum sínum. Í þriðja lagi er sjóðurinn fjármagnaður með söfnun smámyntar um borð í flugvélum Icelandair.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og formaður stjórnar hans er Sigurður Helgason fyrrum forstjóri félagsins.