|Fréttabréf Icelandair
Skráðu þig í áskrift og láttu engin tilboð framhjá þér fara.
Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (KEF)-
Berlín (BER)Reykjavík (REK)-
Berlín (BER)Reykjavík (REK)-
Berlín (BER)Reykjavík (REK)-
Berlín (BER)Reykjavík (REK)-
Berlín (BER)* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð |
---|---|---|---|---|
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 03. nóv. 2025 - 06. nóv. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 07. okt. 2025 - 14. okt. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 13. okt. 2025 - 16. okt. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 03. nóv. 2025 - 07. nóv. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 10. nóv. 2025 - 13. nóv. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 10. nóv. 2025 - 14. nóv. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 06. okt. 2025 - 09. okt. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (KEF) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 06. okt. 2025 - 10. okt. 2025 | Frá 38.105 kr. Síðast skoðað: 2 klst. síðan |
Reykjavík (REK) | Berlín (BER) | Báðar leiðir / Economy | 31. júl. 2025 - 05. ágú. 2025 | Frá 47.335 kr. Síðast skoðað: 21 klst. síðan |
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Berlín er allt annað en einsleit borg – andlit hennar eru ótalmörg. Hvar á maður að byrja í þessum kraumandi potti fjölmenningarinnar?
Borgin er bæði landfræðilega og sögulega miðlæg í Evrópu og minnisvarðar um þessa löngu og átakanlegu sögu eru hér á hverju strái.
Síðustu áratugina hefur Berlín sömuleiðis orðið miðlæg í listalífi álfunnar, eins og ótal gallerí, tónleikar og listviðburðir sem fara þar fram allt árið um kring bera vitni.
Áin Spree þræðir sig í gegnum Berlín þvera og endilanga, en áin var ein helsta forsendan fyrir því að þéttbýli myndaðist á svæðinu til að byrja með.
Ferðalag meðfram ánni, hvort sem er á báti eða á hjóli meðfram bökkum hennar, setur mann í eins konar samband við ferðalanga fyrri alda, þegar skipaferðir voru aðal samgöngumátinn og byggðin við árbakkana var það sem blasti fyrst við þeim sem áttu leið um svæðið.
Í Berlín er gróska í menningarlífinu allt árið um kring, í þeim skilningi er enginn slæmur tími til að ferðast þangað.
En þau sem sækjast eftir mikilli útiveru ættu auðvitað að mæta á svæðið yfir sumartímann, þegar líflegt og blómlegt er í almenningsgörðunum, götumarkaðarnir opna og heimamenn kneyfa öl í hreinræktuðum þýskum Biergarten.
Ferðlag til Berlínar að vetri til hefur allt annað yfirbragð. Þá er markið sett á kósí kaffihús, vetrarmarkaði og jólaglögg undir berum himni.
Með Icelandair VITA er hægt að bóka pakkaferð til Berlínar.
Margir af afdrifaríkustu atburðum 20. aldarinnar áttu sér stað í Berlín. Nokkrar byggingar virka sem minnisvarðar um þessa sögulegu fortíð.
Hér mætti nefna þinghúsið, Reichstag, Brandenborgarhliðið, minnisvarðann um helförina og rústir Berlínarmúrsins.
Fjöldi safna varpar ljósi á sögu borgarinnar sem og ótal margt annað. Á Safnaeyjunni svokölluðu má berja augum ótrúlegt safn sögulegra minja og listgripa.
Á eyjunni er líka frægur markaður um helgar, Berliner Kunstmarkt, sem vel er þess virði að heimsækja.
Kurfürstendamm er helsta verslunargata borgarinnar (heimamenn kalla hana Kudamm). Hún er yfir 3 km að lengd og full af búðum og verslunum.
Þau sem eru í leit að því allra fínasta ættu að smeygja sér inn á Fasanenstrasse, en matgæðingar ættu ekki að láta matarsalina inn í KaDeWe-stórverslunni (Kaufhaus des Westens) fram hjá sér fara.
Markaðirnir í Berlín eru vinsælir bæði meðal heima- og ferðamanna. Af nógu er að taka, en sunnudagsmarkaðurinn í Mauerpark er fullkominn ef þú ert í leit að því nýjasta í heimi tísku og listar.
Þú kemst á bragðið af vinsælustu réttum borgarinnar á næsta imbiss eða skyndibitastað.
Currywurst (karrýpylsa) er klassískur réttur og þú getur fengið döner kebab á nánast hverju götuhorni.
Það er því nóg af skyndibita á svæðinu en það sama má segja um fínni og dýrari veitingastaði – og í raun allt þar á milli: hér eru fínir kaffibarir, heimilslegar krár og íburðarmiklar sælkerabúðir.
Annar klassískur sem rétt er að nefna er Köningsberg Klopse, stálheiðarlegar kjötbollur í hvítri sósu með kartöflum.
Taktu stefnuna á hverfi eins og Scheunenviertel, Kreuzberg, Neukölln og Prenzlauer Berg.
Kreuzberg-hverfið er rómað fyrir litríkt lista- og menningarlíf. Hér er kjörið að heimsækja flóamarkaðina og blanda geði við innfædda, bragða á currywurst eða kebab, panta sér kaffi af öllum gerðum sem hægt er að ímynda sér, og líta við á söfnum um sögu og menningu borgarinnar.
Í Prenslauer Berg er svo að finna elstu krá borgarinnar, Prater Garten, sem hefur verið starfrækt frá árinu 1837.
Og svo er um að gera að líta við á „strandbörunum“ svokölluðu, sem iða af lífi meðfram ánni Spree.
Það er tiltölulega auðvelt að komast leiðar sinnar í Berlín þökk sé lestarkerfunum tveimur, neðanjarðarlestunum (U-Bahn) og ofanjarðarlestunum (S-Bahn), sem báðar tilheyra almenningssamgöngukerfi borgarinnar.
Borgin er heldur stór til þess að raunhæft sé að fara allar ferðir fótgangandi, þó að gönguferð milli helstu staða í miðbænum sé góður kostur.
Þó það kunni að virka þægilegt að leigja bíl, er afar erfitt að finna bílastæði víða í borginni. Auðvelt er að ná í leigubíla.
Flug Icelandair til Berlínar lendir á Berlin Brandenburg flugvellinum (BER). Nokkrar leiðir eru færar til að ferðast þaðan niður í bæ.
Hægt er að taka S-Bahn lestina S9 niður á Hauptbahnhof í miðbænum. Ferðalagið tekur um 50 mínútur. Þar sem flugvöllurinn telst vera á C-svæði, ættu farþegar að kaupa ABC miða.
Airport Express vagninn X7 (stoppar við komusvæði flugstöðvar nr. 1) fer á 5 mínútna fresti. Þú ferð út á U-Rudow stöðinni og þaðan getur þú tekið lest inn í hjarta borgarinnar.
Gagnlegar upplýsingar fyrir ferðamenn
Beint flug frá Keflavík to Berlínar tekur að öllu jöfn um 3 og hálfa klst.
Yfirleitt er ódýrasta flugið til Berlínar í janúar eða febrúar, þegar eftirspurnin er minnst.
Það er ekki endilega tilfellið að flugmiðinn sé margfalt dýrari á öðrum árstíma eða að ekki sé hægt að finna ódýrt flug á háannatíma.
Við mælum einfaldlega með því að bóka með eins miklu fyrirvara og hægt er, og að vera nokkuð sveigjanleg með dagsetningar, til að fá sem best verð.