Fljúgðu með Icelandair til Færeyja, verð frá

Flug á næstu þremur mánuðum

kr.

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
03. júl. 2024 - 10. júl. 2024
Frá
47.305 kr.*
Skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
07. júl. 2024 - 12. júl. 2024
Frá
47.305 kr.*
Skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
08. maí 2024 - 13. maí 2024
Frá
49.005 kr.*
Skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
19. jún. 2024 - 26. jún. 2024
Frá
49.005 kr.*
Skoðað: 1 dagur síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
10. júl. 2024 - 15. júl. 2024
Frá
45.505 kr.*
Skoðað: 17 klst. síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
12. júl. 2024 - 19. júl. 2024
Frá
45.515 kr.*
Skoðað: 2 dagar síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
26. jún. 2024 - 30. jún. 2024
Frá
47.315 kr.*
Skoðað: 2 dagar síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Reykjavík (KEF)-

Þórshöfn (FAE)
11. júl. 2024 - 15. júl. 2024
Frá
49.015 kr.*
Skoðað: 2 dagar síðan
Báðar leiðir
/
Economy

Egilsstaðir (EGS)-

Þórshöfn (FAE)
07. jún. 2024 - 10. jún. 2024
Frá
87.740 kr.*
Skoðað: 16 klst. síðan
Báðar leiðir
/
Economy

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Planaðu fram í tímann! Bókaðu flug til Færeyja með Icelandair

kr.
FráReykjavík (KEF)TilÞórshöfn (FAE)Báðar leiðir
/
Economy
18. ágú. 2024 - 21. ágú. 2024

Frá

50.805 kr.*

Skoðað: 50 mínútur síðan

FráReykjavík (KEF)TilÞórshöfn (FAE)Báðar leiðir
/
Economy
17. ágú. 2024 - 21. ágú. 2024

Frá

49.005 kr.*

Skoðað: 1 dagur síðan

FráReykjavík (KEF)TilÞórshöfn (FAE)Báðar leiðir
/
Economy
06. ágú. 2024 - 13. ágú. 2024

Frá

53.205 kr.*

Skoðað: 1 dagur síðan

FráReykjavík (KEF)TilÞórshöfn (FAE)Báðar leiðir
/
Economy
04. sep. 2024 - 08. sep. 2024

Frá

45.505 kr.*

Skoðað: 13 klst. síðan

FráReykjavík (KEF)TilÞórshöfn (FAE)Báðar leiðir
/
Economy
07. ágú. 2024 - 11. ágú. 2024

Frá

57.405 kr.*

Skoðað: 20 klst. síðan

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalög til Færeyja

Eyjarnar 18 sem saman mynda Færeyjar eru fagrar á að líta, fjöllóttar og prýddar fjölskrúðugu fuglalífi. Færeyjar eiga margt sameiginlegt með nágrönnum sínum í Norður-Atlantshafi, en þær eru staðsettar um það bil miðja vegu milli Íslands, Noregs og norðurhluta Skotlands.

Flugið frá Íslandi til Færeyja tekur að öllu jöfnu minna en tvær klukkustundir.

Icelandair flýgur til Færeyja 5 til 6 sinnum í viku frá 1. maí 2024 til 26. október 2024.

Með Icelandair VITA er hægt að bóka pakkaferðir til Færeyja, annars vegar flug og bíl og hins vegar flug og hótel

Hvers má vænta í Færeyjum?

Staðsetning eyjanna í miðju Norður-Atlantshafi gefur vísbendingu um veðráttuna. Hér er tiltölulega svalt mestallt árið og töluvert rigningasamt. En votviðrið er eins og alþjóð veit gott fyrir gróðurinn og skapar kjöraðstæður fyrir þann fjölda sauðgripa sem þramma um eyjarnar (þeir eru um 70.000 og þar með talsvert fleiri en mannfólkið).

Í Færeyjum er þokuloft líka fastur punktur í tilverunni. Umvafðar þoku eru eyjarnar fullar af dulúð, en þegar henni léttir gefur víða að líta græna haga, þverbrattar fjallshlíðar og hafflöt sem teygir sig svo langt sem augað eygir. Fuglalíf eyjanna er engu líkt og heillandi gönguleiðir óþrjótandi.

Þórshöfn, höfuðstaður Færeyja

Þórshöfn dregur vitaskuld nafn sitt af þrumuguðinum Þór. En yfirbragð bæjarins er í algjörri andstöðu við ímynd hins þrekna, skapstóra og ofbeldishneigða áss. Þetta er litríkt og huggulegt þorp, prýtt vel varðveittum timburhúsum með fagurgrænum torfþökum.

Í Þórshöfn búa um 23.000 manns. Þó bærinn sé ekki fjölmennur, má finna þar allt sem prýða þarf höfuðborg: lista- og sögusafn, miðbæ sem varðveitir byggingalist fyrri tíðar, veitingastaði sem framreiða sjávarrétti í hæsta gæðaflokki og ýmis konar menningarstarfsemi.

Hvað er við að vera í Færeyjum?

Allt alþjóðlegt flug til Færeyja lendir á eynni Vágar og ferðalöngum er ráðlagt að staldra þar við í upphafi eða við lok ferðar. Á eynni er úrval fjalla sem henta vel fyrir göngur, tilkomumiklir fossar og hrikalegir en ægifagrir klettadrangar.

Eyjan er byggð nokkrum smáþorpum. Þeirra á meðal er Gásadalur, en staðurinn er annálaður fyrir náttúrufegurð sína, einkum fyrir hinn 30 metra háa Múlafoss sem fellur til sjávar fram af klettabrún í stuttri göngufjarlægð frá bænum.

Á ferðalagi um Færeyjar gefur náttúran ósjaldan tilefni til að staldra við, tæma hugann og njóta kyrrðarinnar. Og til að hugleiða samband manns og óblíðrar náttúru gegnum aldirnar ellefu sem liðnar eru frá því eyjarnar byggðust fyrst á 9. öld.

Heimsæktu fögur bæjarstæði á borð við Saksun og Kirkjubøur, kannaðu fuglalífið í Vestmannabjørgini, sjónhverfingar náttúrunnar við Sørvagsvátn, útsýnið frá vitanum Kallur á Kalsoy og lundabyggð á eynni Mykines. Fjölskrúðug náttúra og fjölbreytilegt mannlíf gefa ærið tilefni til að heimsækja nágranna okkar á norðlægum slóðum.