Sértilboð til Boston í vetur þar sem þú gistir í þrjár nætur en greiðir aðeins fyrir tvær nætur.
Ferðatímabilið er frá 16. nóvember til 31. mars 2025.
Borgin Boston sem er áhugaverð á öllum árstíðum býður ferðamönnum allt sem hugurinn girnist, heillandi borgarhverfi, merkisstaði úr sögu og samtíð og söfn á heimsmælikvarða. Þar er er að finna geysilegan fjölda áhugaverðra veitingahúsa þar sem má kynnast matargerð frá nánast öllum heimshornum. Menningarlífið er frábært og allir finna eitthvað við sitt hæfi, leikhús, söngleiki, jass og blús, popp, danstónlist og klassíska tónlist.
Hægt er að bóka ýmsa afþreyingu sem er í boði í Boston og nágrenni hér.