Pingdom Check

Búðu til þína eigin formúluferð!

Bókaðu allan pakkann hjá okkur:

  • Þriggja daga passa (almennt svæði) á Formúla 1 í Barcelona dagana 21 - 23. júní á Circuit de Barcelona-Catalunya
  • Flug á dagsetningum að eigin vali (innan ákveðins tímabils)

Nánari upplýsingar:

  • þriggja daga aðgangspassinn sem er í boði gildir sem "General Admission" sem er inn á svæðið , en ekki í sæti. Helsta almenna aðgangssvæðið "General Admission" á Barcelona Circuit de Catalunya er á milli beygju 5 og beygju 9 og býður upp á gott útsýni yfir brautina. Stóru grasbakkarnir á þessum hluta brautarinnar veita öllum áhorfendum gott útsýni.
  • Aðgangspassinn gildir í þrjá daga (21 - 23. júní) þó svo bókunarstaðfestingin sýni bara einn dag.
  • Nánar um Formúla1
  • Sjá tímatöflu dagana 21 - 23. júní.
  • Miðarnir verða sendir rafrænt á það netfang sem gefið var upp við bókun
  • Athugið að verð frá og sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.
  • Besta mögulega dagsetning og verð frá er að finna miðað við brottfarir: 12., og 17. júni og heimkomur: 24., 29. júni og 3.júlí. Athugið dagsetningar og verð frá geta breyst.
  • Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim

"General Admission" svæðið, sjá grænt

F1 er ein þekktasta tegund kappaksturs í heimi og fer mótaröðin fram á sumrin, hefst í mars og er tímabilið yfirleitt búið í desember. 

F1 brautin í Barcelona býður aðdáendum upp á spennandi mótorsportsupplifun. 66 hringir og 4.657 kílómetrar verða eknir. Circuit de Barcelona-Catalunya er þekkt braut fyrir að vera krefjandi og reynir á heildarframmistöðu bíla og ökumanna.

Spennandi að upplifa Formúluna í beinni!

Innifalið í pakkanum

fráISK 149.900 Verð á mann
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu