Pingdom Check

Peter Salmon GOLF. Golfperla í ekta spænskum stíl við landamæri Spánar og Portúgals!

Isla Canela Golf er fjögurra stjörnu lítið boutique hótel með 58 herbergjum. Það er einstaklega hlýtt og gott andrúmsloft á hótelinu sem er innréttað í ekta spænskum stíl. Golfvöllur Isla Canela umlykur hótelið og er klúbbhúsið hinum megin við götuna. Morgunverðarhlaðborð er borið fram í huggulegum matsal hótelsins og á kvöldin eru matseðlar dagsins með fjórum réttum sem eru þjónaðir til borðs.

Hótelið er á friðsælum stað við Isla Canela golfvöllinn, en það er líka í nálægð við úrval af börum, veitingastöðum og strönd. Isla Canela Golf er fullkominn valkostur fyrir afslappaða og ógleymanlega golfferð til Spánar.

Breiðar 17. og 18. brautirnar eru staðsettar í kringum hótelið sjálft og það eru ekki margir metrar á 1. teig. Völlurinn var opnaður árið 1993, hannaður af Juan Catarineu og er flatur og vingjarnlegur að ganga á. Það eru nokkur vötn og fullt af trjám, ólífum og appelsínutrjám. Vellinum er vel við haldið og á golfhringnum þínum muntu upplifa fallegt útsýni, í fallegri náttúru. Klúbbhúsið er lítið og notalegt og rétt eins og hótelið er það mjög hlýlegt. Lítil golfbúð er einnig í klúbbhúsinu. Í mjög stuttu göngufæri í nálægð við fyrstu holu er æfingarsvæði með glompum og púttflöt.

Árið 2020 opnaði Isla Canela nýjar 18 holur. Valle Guadiana Links völlurinn sem er staðsettur í u.þ.b. 15 mínútna akstursfjarlægð frá hóteli Isla Canela. Staðsettur á bökkum Guadiana-árinnar og með stórkostlegu útsýni yfir Portúgal liggur Valle Guadiana. Stórskemmtilegur og vel hirtur golfvöllur sem gaman er að spila. Klúbbhúsið þar er líkt því á Isla Canela með hlýju og notalegu umhverfi og þess má geta að sami matseðill er í báðum klúbbhúsum. Athugið að spilað er 2 sinnum á þessum velli í ferðunum okkar, hina dagana er spilað á Isla Canela við hótelið sjálft.

Miðbær Ayamonte er staðsettur í aðeins tíu mínútna fjarlægð með leigubíl og liggur við hliðiná Guadiana ánni. Ayamonte er dæmigerður heillandi spænskur bær, fullur af þröngum götum með klassískum spænskum börum, Tapas stöðum og veitingastöðum. Í aðeins tveggja kílómetra fjarlægð er einnig Isla Canela smábátahöfnin þar sem einnig er falleg strönd. 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
Sætaval
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting með hálfu fæði

Hálft fæði innifalið

Ótakmarkað golf

Ótakmarkað golf

Flutningur á golfsetti

Flutningur á golfsetti innifalinn

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu