Platja d´Aro er hjarta Costa Brava. Costa Brava eða "villta ströndin" er nátturuperla sem margir Íslendingar eiga enn eftir að upplifa.
Platja d´Aro strandbærinn býður upp á allt sem þarf fyrir gott frí: 2 km standlengju og jafnlanga verslunargötu með öllum helstu verslunum eins og Mango, Bershka, Stradivarius, Massimo Dutti og Kiko svo eitthvað sé nefnt, veitingastöðum, börum og diskótekum. Bærinn er aðallega heimsóttur af Spánverjum, Frökkum, Þjóðverjum, Belgum og Hollendingum sem flestir koma keyrandi yfir landamærin. Það eru um 120 km frá flugvellinum í Barcelona til Platja d’Aro og ekið er í norðurátt þaðan. Aksturinn tekur rúmlega klukkustund.
Ýmsa skemmtilega afþreyingu má finna í Platja d’Aro fyrir utan að njóta sólarinnar og strandanna, í bænum er líka vatnsgarðurinn "Aquadiver Parc" þar sem finna má fjölbreyttar sundlaugar og rennibrautir af öllum stærðum og gerðum. Um 10 mínútna akstur er þangað frá miðbænum.
Fyrir þá sem vilja hreyfa sig aðeins mælum við með að ganga strandstíginn austur af Platja d´Aro ströndinni. Þar er hægt að skoða um 9 strandvíkur áður en komið er í strandbæinn Sant Antonio de Calonge.
Fyrir tónlistaráhugafólk bendum við á ókeypis Jazz tónleika á ströndinni, vikulega í júní, júlí og ágúst, yfirleitt á fimmtudagskvöldum.
Við mælum eindregið með að þeir sem hyggjast heimsækja Costa Brava séu með bílaleigubíl amk hluta af tímanum og skoði bæði nærliggjandi standþorp eins og Llafranc, Calella de Palafrugell og Tamariu sem og sögufræg þorp inn í landi eins og Pals, Begur og Peratallada. Dalí safnið í Figueres er einnig í seilingarfjarlægð (73 km). Eftir safnið er tilvalið að fara í vínsmökkun í Perelada eða áfram til Cadaqués og Port Lligat (strandbæir) þar sem Dalí bjó.
Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Verð er 8.500 kr á mann aðra leið.
Um 90 til 120 mín akstur er frá flugvellinum í Barcelona til Platja d'Aro.
Vinsamlegast athugið að ef ferðast er með golfsett eða annan aukafarangur þarf að greiða aukalega fyrir það í akstrinum. Hafið samband við okkur til að bóka aukafarangur.
Koma - frá BCN flugvelli til Platja d'Aro
- BCN Arrivals Terminal 2 -> Icelandair lendir í Terminal 2 á Barcelona flugvelli. Bílstjórinn mun bíða með skilti með nafni eins farþega úr bókuninni þar sem gengið er úr töskusalnum. Hann vísar farþegum á bílinn.
Hringja má í síma +34 937 067 619 ef þið finnið ekki bílstjórann. Ef upp koma vandamál varðandi farangur eða annað sem veldur því að farþegar koma seint út úr töskusal skal haft samband við rútufyrirtækið í síma: +34 93 767 2836
Brottför - frá Platja d'Aro til BCN flugvallar
Á brottfarardegi eru farþegar sóttir á hótelið sitt 4 tímum fyrir brottför.
Hringja má í síma +34937067619 ef þið finnið ekki rútuna.