Sértilboð til Washington þar sem þú gistir í fjórar nætur en greiðir aðeins fyrir þrjár nætur. Ferðatímabilið er til 30. apríl 2024.
Í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington D.C., má finna fjölda sögufrægra staða, ókeypis sýningar og óendanlega marga viðburði. Gakktu um söguslóðir í Georgetown og njóttu lífsins á börum og veitingahúsum á árbakkanum.
Við mælum með að hefja ferðina á National Mall þar sem gefur að skoða meðal annars Washington minnismerkið, Hvíta Húsið, Þinghúsið, hina mögnuðu styttu af Abraham Lincoln og Thomas Jefferson og Víetnam vegginn sem lætur engan ósnortinn.
Hægt er að bóka ýmsa afþreyingu sem er í boði í Washington og nágrenni hér.