Pingdom Check

Sigling með Celebrity Silhouette

Siglt frá Barcelóna til Flórída frá 14. nóvember - 1. desember með Celebrity Silhouette
Fararstjóri: Kristín A Árnadóttir

Barcelóna, Spáni - Lissabon, Portúgal – Ponta Delgada,  Azoreyjum – Royal Naval, Bermúda eyjum – Ft. Lauderdale og Orlando Flórída.

Stutt Ferðalýsing:
Flogið með Icelandair til Barcelóna. Eftir tvær nætur í hinni yndislegu Barcelóna borg er farið um borð í Celebrity Silhouette farþegaskipið. Fyrsta stopp er Lissabon, Portúgal, áður en Asoreyjar eru heimsóttar, sem eru í miðju Atlantshafi. Eftir nokkra daga siglingu er stoppað á Bermuda eyju og svo siglt til Ft. Lauderdale.
Í Flórída er síðan gist í Orlando áður en flogið er heim á leið.
 

Celebrity_Silhouette_ new.jpg

Celebrity Silhouette 
Celebrity Silhouette fór í sína jómfrúarferð í júlí 2011. Skipið fór í algera endurnýjun í lok janúar 2020. Skipið er 122.000 rúmlestir, um 315 metrar á lengd og með rými fyrir 2850 farþega. Það er 12 hæðir og á efsta þilfari er Sveitaklúbburinn The Lawn Club með vel snyrtri grasflöt, sólarlagsbarnum og keilubrautum.
Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut, setustofum, veitingastað og bar, allt með miklu útsýni. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa. Þar eru nuddpottar, gufa, sauna og endalausir möguleikar á ýmsum dekur- og heilsubætandi meðferðum. Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölu, kaffihús, ísbúðir o.fl.  Á Promenade þilfarinu eru litlar verslanir, vínbarir og spilavíti.
Kvöldverður eru borin fram í aðal veitingasal skipsins, sem er á tveimur hæðum. Fleiri veitingastaðir eru um borð eins og Murano sem er með úrval alþjóðlegra rétta á matseðlinum og Tuscan Grille , sem býður ítalska rétti og lúxus steikur. Silk Harvest er með asískt eldhús. Bóka þarf borð og greiða þjónustugjald á sérrétta veitingastöðum skipsins, gjaldið er frá 30 – 90 USD á mann, fer eftir stöðum.
Barir og setustofur eru um allt skip og þegar kvölda eru glæsilegar sýningar og uppákomur í leikhúsinu, sem er á þremur hæðum.
Vínspesíallistar frá vínræktarhéruðunum í Napa Valley eru á barnum Cellar Masters og kenna ykkur  að þekkja göfug vín og velja það besta um borð.

Flugnúmer DagsBrottförKl.Áfangastaðurkl.
FI 59614. nóvemberKeflavík08:00Barcelóna 13:10
FI 6881. desemberOrlando int.17:55Keflavík06:15+1

Siglingarleið

DagsÁfangastaðurkomabrottför
16. nóvemberBarcelóna, Spáni 17:00
17. nóvemberÁ siglingu  
18. nóvemberLissabon, Portúgal11:0023:00
19. nóvemberÁ siglingu  
20. nóvemberÁ siglingu  
21. nóvemberPonta Delgada, Azoreyjum08:0018:00
22. nóvemberÁ siglingu  
23. nóvemberÁ siglingu  
24. nóvemberÁ siglingu  
25. nóvemberÁ siglingu  
26. nóvemberRoyal Naval Dockyard, Bermudaeyjar08:0016:00
27. nóvemberÁ siglingu  
28. nóvemberÁ siglingu  
29. nóvemberFort Lauderdale, Flórída07:00 

Ferðatilhögun

Fimmtudagur 14. nóvember - Brottför
Flogið er til Barcelóna  í beinu flugi Icelandair. Þegar komið er til Barcelóna er ekið beint á hótel Catalonia Plaza Catalunya , þar sem gist verður í Tvær nætur

sagrada_familia_barcelona.jpg

Barcelóna á Spáni
Siglingin hefst í Barcelóna á norðaustanverðum Spáni, um 145 km sunnan landamæra Spánar og Frakklands.  Gestir þyrpast til borgarinnar frá öllum heimshornum til að njóta sérstöðu hennar, menningar og fegurðar. Þegar H.C. Andersen kom til Barcelóna árið 1862 lét hann svo um mælt að borgin væri „París Spánar“. Það geta margir tekið undir. Borgin er mikils háttar menningarsetur með heillandi sögu. Þar er alls staðar að finna góða veitingastaði, sjarmerandi kaffihús, minjasöfn og merkar byggingar auk stórkostlegra dæma um skreyti- og byggingarlist í módernískum og „art nouveau“-stíl

La Basílica i Temple Expiatori de la Sagrada Família  (Höfuðkirkja og friðþægingarmusteri hinnar helgu fjölskyldu), þekktari sem La Sagrada Familia, er án efa frægasta verk katalónska arkitektsins Antonis Gaudí. Hún er í raun einskonar tákn Barselónuborgar. Enn er verið að byggja hana en stefnt að því að ljúka verkinu 2026, á aldarártíð arkitektsins. Við skoðum hana bæði að utan og innan. Park Güell er garður í hlíðunum ofarlega í borginni, nefndur eftir helsta bakhjarli Gaudís, katalónska auðjöfrinum Eusebi Güell. Hugmynd þeirra með garðinum var að hanna íbúðarhverfi fyrir efnafólk í upphafi 20. aldar. Það fór hinsvegar útum þúfur en eftir stendur þessi einstaki garður.

barcelona_2.jpg

Föstudagur 15. nóvember   Barcelóna
Eftir morgunverð í farið í skoðunarferð um borgina
Ekið um borgina til að sjá helstu minnismerki, en þar ber hæst hina frægu Gaudi kirkju
La Basílica i Temple Expiatori de la Sagrada Família, (Höfuðkirkja og friðþægingarmusteri hinnar helgu fjölskyldu). Kirkjan er þekktari sem La Sagrada Familia og er án efa frægasta verk katalónska arkitektsins Antonis Gaudí. Hún er í raun einskonar tákn Barselónuborgar. Enn er verið að byggja hana en stefnt að því að ljúka verkinu 2026, á aldarártíð arkitektsins. Við skoðum hana bæði að utan og innan.
Næsti áfangastaður er Monjuic, endum ferðina á hádegisverði í tapas.

Celebrity_Silhouette_sunset_bar_2.jpg

Laugardagur 16. nóvember  Celebrity Silhouette
Eftir rólegan morgun á hótelinu og rétt fyrir hádegi er ekið að skipi og tékkað inn. 
Fyrst verður gengið um skipið og síðan farið í hádegisverð áður en Celebrity Silhouette leggur frá bryggju kl. 17:00.

celebrity_eclipse_topper.jpg

Sunnudagur 17. nóvember. Á siglingu 
Fyrsti dagur á siglingu og kjörið tækifæri til að skoða skipið og kynnast fjölbreyttri þjónustu og möguleikum um borð á meðan stefnan er tekin á Lissabon.

lissabon_lisboa_7.jpg

Mánudagur 18. nóvember, Lissabon, Potúgal
Að nálgast Lissabon af hafi, og upplifa hvernig borgin breiðir út faðminn, er mynd sem enginn getur gleymt sem upplifað hefur. Þá skilur maður gælunafnið sem hún fékk á öldinni sem leið - Hvíta perlan í suðri.
Íslenskir salt- og saltfisk- kaupmenn sem þangað sóttu voru líka metnir sem þjóðhöfðingjar - mennirnir frá eyjunni norðlægu, þaðan sem besti saltfiskurinn kom - saltfiskurinn sem skyldi verða jólamáltíðin. Gilti þá einu hvað einvaldurinn og harðstjórinn Antonio de Oliveira Salazar lagði á þjóð sína af klöfum og harðræði.
Hann ákvað að "Bacalao Islandia" skyldi verða á borðum ríkra og fátækra á jólum.

Celebrity_Silhouette_lawn_club_lounge.jpg

Þriðjudagur 19. og miðvikudagur 20. nóvember - Á siglingu
Tveir dagar til að njóta lífsins um borð í skipinu, sem nú siglir nú út á Atlantshaf. Njótið þess að skoða skipið, leggjast á sólbekk við sundlaugina og smakka hina litskrúðugu og ljúffengu  kokteila sem barþjónarnir blanda. Svo má fara í búðir, á málverkauppboð - eða kannski á matreiðslunámskeið, danskennslu eða sækja fyrirlestur.
Matur og drykkur allan daginn, svo bíður 3ja rétta kvöldverður og glæsileg sýning um kvöldið.

azores_almennt_sigling_2.jpg

Fimmtudagur 21. Nóvember  Ponta Delgada, Asoreyjum
Ponta Delgada er höfuðstaður eyjunnar São Miguel og margir líta einnig á bæinn sem þann mikilvægasta á Asoreyjaklasanum. Eitt er víst, hér er margt að sjá og gera eins og göngutúr við höfnina leiðir í ljós því að auk himinbláma Atlantshafsins blasa þar við glæsilega byggingar allt frá endurreisnartímabilinu á 16. öld. Hér er líka hægt að skella sér í skipulagðar gönguferðir eða prófa kajaksiglingar og brimbrettabrun og þeir sem eru á ferðinni frá apríl fram í september eiga einstaklega góða möguleika á að berja augum hvali á borð við flipahvali, sem eru náskyldir grindhvölunum sem við þekkjum hér nyrðra, norðsnjáldra og ef heppnin er með í för steypireyði

celebrity_reflection_4.jpg

Föstudagur  22. - mánudags 25. Nóvember   Á siglingu
Næstu dagar fara í það að njóta alls þess sem er í boði á þessu frábæra skipi, um gera að láta dekra við sig hvort sem er við sundlaugina eða innandyra í heilsulindinni eða í því sem hugurinn girnist. Mikið er um að vera á skipinu og alltaf hægt að finna eitthvað sem ekki hefur gefist tími til að njóta. Margar uppákomur eru allan daginn hvort sem er úti við sundlaug eða innandyra, kvöldin hefjast með lifandi tónlist á Grand Foyer og Martini barnum. Síðan eru skemmtilegar sýningar í leikhúsinu öll kvöld og í framhaldi eru uppákomur í Celebrity Central. 

kings_wharf_bermuda.jpg

Þriðjudagur 26. Nóvember Royal Naval Dockyard, Bermuda
Royal Naval Dockyard á sér ríka siglingasögu og auk þess sem mikið af listamönnum hafa lagt leið sína og starfa þar.

Celebrity_Silhouette_solarium_5.jpg

Miðvikudagur 27. og fimmtudagur 28. nóvember - Á siglingu
Tveir síðustu dagarnir til að njóta lífsins um borð í skipinu, sem nú siglir nú til Ft. Lauderdale.  Síðustu dagarnir á skipinu og þá hefjast margs konar tilboð í verslunum og leikir og getraunir hjá skartgripasölunum, svo ekki sé talað um málverkauppboðið sem hefur verið í gangi mest alla siglinguna. 

Celebrity_Silhouette_new.jpg

Föstudagur 29. nóvember Ft. Lauderdale
Celebrity Silhouette leggst við bryggju um kl. 07:00 að morgni. Eftir morgunverð er farið frá borði og ekið til Orlando þar sem gist er á The Florida hotel & Conference Center í tvær nætur.

Florida Hotel_3.jpg

Laugardagur 30. nóvember, Orlando
Dagur til að njóta í Orlandó. The Florída hotel & Conference Center er staðsett við Flórída mall og er innangegnt í um 160 verslanir, einnig er notarlegur sundlaugargarður við hótelið þar sem hægt er að njóta sólarinnar áður en haldið er heim  á leið.
Í Orlandó eru einnig fjöldinn allur af skemmtigörðum sem hægt er að heimsækja.
 

Sunnudagur 1. desember - heimferð
Eftir hádegið er brottför frá hóteli á flugvöll. Áætluð brottför heim til Íslands er kl. 17:55 og lending í Keflavík kl. 06:15 að morgni 2. desember.

 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Sigling skv ferðalýsingu

Sigling

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Gististaðir

Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu