Skilmálar fyrir hópa í pakkaferð
Til að teljast hópur verða 10 farþegar eða fleiri að ferðast saman.
Verð gildir í 5 virka daga. Innan þess tíma þarf að staðfesta hópinn. Uppgefið verð við staðfestingu er þó háð breytingu á:
- erlendum gjaldmiðli vegna landþjónustu, framhaldsflugs eða annarrar þjónustu sem keypt er og skal gengi dagsins þegar greitt er gilda.
- fargjöldum, flugvallarsköttum, þjónustugjöldum og öðrum gjöldum.
Skila þarf endanlegum nafnalista innan tveggja vikna frá staðfestingu hóps en þó aldrei síðar en 12 vikum fyrir brottför.
Fullnaðargreiðsla skal liggja fyrir eigi síðar en 8 vikum fyrir brottför. Sé bókun gerð innan þess tíma skal fullnaðargreiðsla fara fram við bókun.
Gæta skal að því að nöfn farþega séu í samræmi við vegabréf.
Öll hópafargjöld eru bundin við að hópurinn ferðist saman á útleið. Heimilt er þó að breyta heimleið áður en farseðill er útgefinn, gegn 7.500 kr. breytingargjaldi og mögulegum fargjaldamun. Kostnaður vegna breytingar á nafni fyrir útgáfu farseðils er 4.500 kr. Heimilt er að gera breytingar eftir útgáfu farseðils gegn 15.000 kr. gjaldi og mögulegum fargjaldamun. Ekki er leyfilegt að breyta hópabókun í nýjan áfangastað eftir útgáfu farseðla. Ef erlend flugfélög eru með í bókun er ekki alltaf hægt að gera breytingar á ferðatilhögun hópsins.
Vinsamlegast athugið að breytingar þurfa að berast skriflega í tölvupósti á [email protected].
Afbókanir eru skv. skilmálum pakkaferða Icelandair VITA sjá hér:
Ferðaskilmálar pakkaferða Icelandair - utanlands | Icelandair
Staðfestingargjald, 40.000 kr. á mann, skal greiða innan tveggja vikna frá bókun.
Staðfestingargjald er óendurkræft.
Félagar í Vildarklúbbi Icelandair fá Vildarpunkta fyrir flug sín í hópferð.
Skilmálar þessir eru viðbót við flutningsskilmála Icelandair og eiga við í viðskiptum hópadeildar Icelandair VITA og viðskiptavina þeirra. Icelandair áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara.