Borgarferðir til Parísar. Borgin er ekki öll þar sem hún er séð, svona við fyrstu sýn. Hún er auðvitað fræg fyrir Eiffel-turninn, Sigurbogann og iðandi næturlíf á Champs Elyssées þar sem Crazy Horse Saloon er aðalaðdráttaraflið, með villtum kan-kan dönsum og líflegri stemningu.
Borgin geymir sögu fornra konungdæma, byltinga og valdarána, upp af ösku þeirra risu lýðræðishugmyndir sem teygðu sig um heiminn, m.a. til Norður-Ameríku. Frelsisstyttan í New York er gjöf frá Frökkum til að fagna frelsi þeirra undan hæl Breta. Enn er hægt að finna fyrir þessum liðnu tímum þegar gengið er um götur Parísar. Dæmi um þetta eru Versalahöll í útjaðri Parísar og Loire-dalurinn þar sem finna má einhverjar fegurstu hallir heims, og voru einhverjar þeirra sumardvalarstaðir frönsku hirðarinnar.
Hótel í París áskilja sér rétt til að innheimta við komu á hótel borgarskatt frá eur 1 til eur 2 á dag.
Þetta er ekki hægt að greiða áður heldur þarf að greiða þessa upphæð aukalega beint til hótelsins við komu.
Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair. Þú safnar 3400 punktum fyrir þessa ferð.