Pingdom Check
04/19/2018 | 12:00 AM

20 börn og fjölskyldur þeirra fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair í dag

20 börn og fjölskyldum þeirra, samtals um eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í dag. Alls hafa 625 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 15 árum og úthlutunin í dag var sú 30. í röðinni.  

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins.

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.

Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða og Flugfreyjukór Icelandair skemmti viðstöddum með söng sínum.

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa rúmlega 3000 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.

Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutun í morgun.