Pingdom Check
frá87.900 kr.

Úrslitakeppni EM A landsliða kvenna fer fram á Englandi sumarið 2022 og eins og kunnugt er verður Ísland á meðal þátttökuþjóða. 

A landslið kvenna verður í D-riðli ásamt Frakklandi, Ítalíu og Belgíu. Ísland hefur leik gegn Belgíu 10. júlí á Manchester City Academy Stadium og mætir síðan Ítalíu á sama stað 14. júlí. Síðasti leikur íslenska liðsins í riðlinum verður síðan gegn Frakklandi á New York leikvanginum í Rotherham 18. júlí. 

Allt um EM 2022 á vef UEFA

Belgía - Ísland 8-12.júlí. 

Sunnudagur 10. júlí Belgía - Ísland kl. 16:00 Manchester City Academy Stadium, Manchester

Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur kr. 87.900.-  

Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 108.900.-

Innifalið: Flug, gisting í fjórar nætur með morgunverði á Maldron Hotel Manchester City Centre, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 10kghandfarangurstösku.

Athugið að miði á leikinn er ekki hluti af pakkanum. 

Öll miðasala á keppnina fer í gegnum UEFA og á vef UEFA er að finna svör við algengum spurningum.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair. Þú safnar 3400 punktum fyrir þessa ferð.

Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.





Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu