Pingdom Check

Ævintýraleg golfferð með 7 daga siglingu ásamt 6 golfhringjum í 3 löndum!

10.apríl í 9 nætur - uppselt
24.apríl í 9 nætur - uppselt
15.maí í 9 nætur - uppselt

9.október í 9 nætur

Þessar ferðir eru 9 nætur með 7 daga siglingu um Miðjarðarhafið ásamt 2 daga dvöl í Róm, tveir golfhringir á Olgiata í Róm fyrir siglingu. Samtals 6 golfhringir í 3 löndum!

Flogið er í beinu flugi til Rómar með Icelandair. Gisting í tvær nætur á Hotel Villa Pamphili áður en sigling hefst ásamt 2 golfhringjum á Olgiata Golf Club. Hótelið er frábært 4 stjörnu hótel sem er mjög stutt frá miðborginni, hringleikahúsinu í Róm og Vatíkaninu. Á hótelinu eru tveir veitingarstaðir, stór sundlaug og 800 fm heilsulind. Tilvalið til að slaka á og njóta Rómar fyrir siglinguna.

Siglt er á flaggskipi Costa sem er Costa Toscana skipið og er lúxus skemmtiferðaskip. Toscana er stærsta skipið í Costa flotanum, byggt 2019 og er með 1550 klefum á 20 þilförum. Um borð eru 13 sundlaugar / heitir pottar, 11 veitingarstaðir, 19 barir og setustofur með lifandi tónlist. Leikhús og kvikmyndahús með alls kyns sýningum ásamt því eru fjölmargar verslanir, listasafn, heilsulind, líkamsrækt og spilavíti umborð. Viðkomustaðir skipsins eru Savona á Ítalíu, Marseille í Frakklandi, Barcelona á Spáni, Palma á Mallorca, Palermo á Síkiley og svo aftur til Rómar. Siglingarleiðin sést hér á myndinni fyrir neðan.

cruise_map.jpg

Dagskrá (ATH: hér er drög að dagskrá með fyrirvara um breytingar á golfvöllum, tímum, veitingarstöðum o.fl)

DAGUR 1 - RÓM á Ítalíu
14:05: Koma til Rómar 
Komudrykkur og innritun á Hótel Villa Pamphili Roma - 19:30 
20:00 - Kvöldmatur á Hótel Villa Pamphili Roma.

DAGUR 2 
09:30 – Akstur til Olgiata Golf Club – 18 holur með golfbíl.
Frjálst kvöld í Róm

DAGUR 3 - fyrsti dagur siglingar.
Brottför frá höfninni: 19:30
07:00 – Akstur til Olgiata Golf Club – 18 holur með golfbíl.
15:00 – Akstur að Citvitavecchia höfninni
20:00 – Fordrykkur á Il Cielo in una stanza, Þilfar 7
21:00 – Kvöldmatur á Ristorante Arlecchino, Þilfar 6

DAGUR 4 - SAVONA á Ítalíu
Koma: 08:30 / Brottför: 18:30
09:00 – Akstur til Sant´Anna Golf Club  – 18 holur með golfbíl
20:00 – Fordrykkur á Campari Bar, Þilfar 7
21:00 – Kvöldmatur á Ristorante Teppanyaki, Þilfar 8

DAGUR 5 - MARSEILLE í Frakklandi
Koma: 09:00 / Brottför: 18:00
09:00 – Akstur til Sainte Baume Golf Club  – 18 holur með golfbíl.
20:00 - Fordrykkur á Ferrari Bar, Þilfar 8
21:00 – Kvöldmatur á Ristorante Arlecchino, Þilfar 7

DAGUR 6 - BARCELONA á Spáni
Koma: 09:00 / Brottför: 19:00
09:00 – Akstur til Real Club de Golf El Prat  – 18 holur með golfbíl.
20:00 – Fordrykkur á Bar Laguna, Þilfar 7
21:00 - Kvöldmatur á Ristorante Arlecchino, Þilfar 6

DAGUR 7 - PALMA á Mallorca
Koma: 08:00 / Brottför: 18:00
08:00 - Akstur til Golf Son Gual  - 18 holur með golfbíl.
20:00 - Fordrykkur á Bar Superba, Þilfar 7
21:00 - Kvöldmatur á Pizzeria Pummid’Oro, Þilfar 8

DAGUR 8 - SIGLING...
20:00 – Fordrykkur á Campari Bar, Þilfar 7
21:00 - Kvöldmatur á Ristorante Arlecchino, Þilfar 6

DAGUR 9 - PALERMO á Síkiley
Koma: 07:00 / Brottför: 17:00
Möguleiki á golfi á 9 holu Villa Airoldi sem er stutt frá höfninni, ekki innifalið.
20:00 - Ferrari smökkun Spazio Bollicine, Þilfar 8
21:00 – Kvöldmatur á Ristorante Archipelago, Þilfar 8

DAGUR 10 - RÓM á Ítalíu
Koma: 09:00, siglingu lýkur
12:00 – Akstur útá flugvöll 
15:05 – Brottför til Keflavíkur

Lágmarks fjöldi í hverri siglingu er 16 manns og hámarks fjöldi  24 manns.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
Sætaval
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting skv ferðalýsingu

Sérvalin hótel

Golf

Golf

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu