Hvenær fórstu síðast á kayak í Ísafjarðardjúpi? Eða miðnæturgolf við sjávarsíðuna? Akkúrat.
Ísafjörður er algjör útivistarparadís og þú getur auðveldlega nýtt helgarferð vestur til að komast hratt og vel út fyrir þægindarammann – og svo beint inn fyrir hann aftur með mat, drykk og spjalli á Tjöruhúsinu – einum af hinum rómuðu veitingastöðum bæjarins.
Upplifðu Vestfirði og kynntu þér úrval á gistingu, veitingum og afþreyingu.
Við mælum einnig með að þú kynnir þér starfsemi Fisherman, sem hefur í tvo áratugi byggt upp fisktengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Hjá þeim getur þú bókað hótelgistingu á Suðureyri, sælkeraferð um þorpið með leiðsögumanni og ýmislegt fleira áhugavert.
Verð á mann m.v. tvo í bíl í einn sólarhring frá kr. 22.400.-
Verð á mann m.v. einn í bíl í einn sólarhring frá kr. 27.900.-
Innifalið: Flug, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 6kg handfarangurstösku, bílaleigubíll, ótakmarkaður akstur, VSK og CDW kaskótrygging. Bíl skal skilað á sama tíma og hann er tekinn annars leggst á aukagjald sem nemur einum sólarhring.
Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.
Vildarpunktar: Þú safnar 1000 punktum fyrir þessa ferð.
Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér vel skilmála pakkaferða. Ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út form á síðunni.
Hægt er að nota ferðainneign eða gjafabréf Icelandair
sem greiðslu upp í pakkann.