Við styðjum strákana okkar í íslenska handboltalandsliðinu með stolti – og fylgjumst spennt með frábærri frammistöðu þeirra á EM.
Við höfum ákveðið að bjóða upp á pakkaferð út í EM-veisluna, helgina 28.-30. janúar, til að sjá undanúrslitin og úrslitin.
Pakkinn inniheldur flug til og frá Búdapest, miða á leikina á föstudag og sunnudag, gistingu á hóteli í tvær nætur og rútu til og frá flugvelli og á leikvanginn á sunnudaginn.
Verð: 159.900 kr. á mann í tvíbýli.
Komdu með í EM-gleðina og hjálpaðu okkur að sýna strákunum okkar fullan stuðning úr stúkunni – ekki missa af stemningunni og leikgleðinni.
Beint flug til og frá Búdapest, 28. janúar - 30. janúar, til að sjá úrslitaleikina.
Flug, gisting í tvær nætur á Courtyard Budapest City Center með morgunverði, rúta til og frá flugvelli og á leikvang á sunnudaginn 30. janúar. miði á leiki á föstudag (undanúrslit) og sunnudag (úrslit), flugvallarskattar og ein innrituð taska (hámark 23kg) ásamt 10kg handfarangurstösku.
Gist er á COURTYARD BUDAPEST CITY CENTER sem er 4ra stjörnu hótel.
Miðarnir verða afhentir á Champs Sportbar í miðborg Búdapest þar sem upphitun Sérsveitarinnar fer fram (nánari upplýsingar hvenær og klukkan hvað birtist síðar).
Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.
Ferðatakmarkanir og sóttvarnarkröfur vegna COVID-19. Settu inn upplýsingar um þína ferð á síðuna til að kanna hvaða reglur gilda á ferðalaginu.
Upplýsingar um COVID-19 og ferðalög til Ungverjalands.
Lágmarksþátttaka þarf að nást til að ferð verði farin. Icelandair áskilar sér rétt til að fella ferðina niður með allt að 24 klst fyrirvara ef næg þátttaka næst ekki.