Pingdom Check

Lítil þorp og rómantískir griðastaðir

Náttúrufegurð, einstök matargerð og sólríkir dagar á paradísareyjunni Krít.

Slökun á bekk við sólgyllta strönd á Krít og hræra helst hvorki legg né lið er engu líkt. Eins dásamlega og það hljómar þá býður Krít einnig upp á endalausa afþreyingu. Sjósund, köfun, allt hugsanlegt sjósport, hjólreiðar, göngur um fjöll og gljúfur, siglingar, skemmtigarða og hinar ýmsu skoðunarferðir. Allt þetta og meira til er að finna á Krít. 

Verslun:

Í Chania eru skemmtilegir markaðir og spennandi litlar verslanir. Kaupglaðir geta valið úr glæsilegum skartgripum, leðurtöskum, skóm, beltum og handunnum leirmunum. Þar eru einnig stærri búðir eins og H&M, Bershka, Zara, Stradivarius og Pull and Bear en það er ekki mikið um fatakeðjur á eyjunni.

Sagan:

Saga Krítar er auðugri en margra nágranna hennar og nær 4.000 ár aftur í tímann. Reyndar er Krít eignaður heiðurinn af því að vera vagga nútíma siðmenningar. Ummerki sem styðja þá staðhæfingu má finna í höllinni í Knossos – Krítverjarnir sem þar bjuggu voru meðal hinna fyrstu sem tileinkuðu sér tísku, samkvæmi og kvenréttindi.

Ef hugurinn stendur til skoðunarferða er enginn staður betri en fagra eyjan Krít til að skoða rómverskar rústir, mínóískar hallir og fagrar býsanskar kirkjur. Vinsælast er þó að heimsækja eyjuna frægu og fögru, Santorini og einnig hefur færst í vöxt að gestir eyjunnar læri matreiðslu af Krítverjum.

Ströndin:

Við ströndina teygir gylltur sandurinn anga sína marga kílómetra. Hótel, barir, verslanir og veitingastaðir raða sér eftir strandlengjunni og bíða þess að þjóna þörfum sumarferðamanna.

Chania

Flogið er til  Chania, sem er önnur stærsta borg Krítar og sem var höfuðborg eyjarinnar til forna. Miðbærinn er þægilegur yfirferðar og má segja að miðjan sé Feneyska höfnin, er þar standa veitingastaðir í röðum og notalegt að setjast niður og horfa á mannlífið. Upp af höfninni eru litlar göngugötur þar sem auðvelt er að drekka í sig gríska stemmningu í litlu búðunum og t.d. kaupa ólífuolíuna sem hvergi er betri en einmitt á Krít.Snotur gallerí, fataverslanir, skartgripa- og leðurverslanir eru á hverju götuhorni. Ekki má heldur gleyma að Chania er borg með allri þjónustu og þar búa Krítverjar – ekki bara ferðamenn.

Platanias

Þetta svæði er 14 km frá Chania og strætó gengur meðfram ströndinni og er byggð milli staðanna er nánast samfelld með veitingastöðum, verslunum, börum og kaffihúsum. Ferðaþjónustan blómstrar og sólþyrstir ferðalangar fá allt frá sandölum og ermalausum bol upp í vandaða minjagripi úr smiðju heimamanna.

Rethymnon

Þriðji stærsti bærinn á Krít er Rethymnon en hann er í um klukkutíma akstri frá flugvelli í Chania. Rethymnon státar líka af Feneyskri höfn og göngugötum og úrval veitingastaða er við höfnina og meðfram ströndinni. Einn af mörgum góðum kostum Rethymnon er að í bænum er breið og falleg sandströnd.

Á Krít mætast gamli og nýi tíminn á heillandi máta og líkt og að ganga inn í annan heim að rölta um þröngar steinilagðar götur bæjanna. Ys og þys borgarlífsins hverfur og sjarmi liðinna tíma tekur yfir. Hér er auðvelt að gleyma sér tímunum saman við að skoða minjar frá því að eyjan laut yfirráðum Feneyinga og síðar Tyrkja.

Á eigin vegum:

Vatnsleikjagarðurinn  Limnoupolis
Rétt fyrir utan Chania er vatnsleikjagarður, Limnoupolis, með leiktækjum, rennibrautum, klifurvegg og veitingastað. Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.  
Takið með ykkur sundföt,  handklæði, sólarvörur og hatta.

Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna 

Köfun, Hjólreiðaferðir & Jeppasafarí - farþegar hafa kost á því að fara í köfun eða á köfunarnámskeið. Einnig er hægt að fara í hjólreiðaferðir. Hægt er að skoða bæklinga um þessa þjónustu í fararstjóramöppunni á hótelum. Fararstjóri aðstoðar við pöntun, ef þess er óskað.

Í Chania og Platanias er fararstjóri á vegum VITA, en þeir sem kjósa að dvelja í Rethymnon eru á eigin vegum, en með þjónustunúmer fararstjóra.

Innifalið í pakkanum

Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu