Pingdom Check
frá89.900 kr.

Sala pakkaferða Icelandair til Boston hefur verið stöðvuð tímabundið í ljósi aðstæðna. Við munum opna fyrir sölu að nýju um leið og frekari upplýsingar varðandi ferðir til Boston liggja fyrir.

Boston býður ferðamönnum upp á allt sem hugurinn girnist, heillandi borgarhverfi, merkisstaði úr sögu og samtíð, margs konar söfn á heimsmælikvarða. Sértilboð þar sem þú gistir í 4 nætur en greiðir aðeins fyrir 3 nætur.

Þar er að finna geysilegan fjölda áhugaverðra veitingahúsa þar sem má kynnast matargerð frá nánast öllum heimshornum. Menningarlífið er frábært og allir finna eitthvað við sitt hæfi, leikhús, söngleiki, jass og blús, popp, danstónlist og klassíska tónlist. Boston er líka kjörinn staður til að kynna sér eina af þjóðaríþróttum Bandaríkjamanna, hafnaboltann.

4 nætur á verði 3ja í Boston á völdum dagsetningum.

Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur frá kr. 89.900.-*
Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 115.600.-*

Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 10kg handfarangurstösku.

Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair. Þú safnar 4800 punktum fyrir þessa ferð. 

Eru ferðapappírarnir þínir í lagi? Ertu búin/n að sækja um ESTA og fylla út APIS?

Áður en haldið er af stað er gott að kynna sérskilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.

*Uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.

Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu