Icelandair bætir við Belfast sem nýjum áfangastað
Icelandair tilkynnti í dag Belfast (BHD) sem nýjan áfangastað í leiðakerfi félagsins. Belfast verður 44. áfangastaðurinn í leiðakerfi Icelandair og hefst flugið þann 1. júní næstkomandi. Flogið verður allt árið, þrisvar sinnum í viku, á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum.
„Belfast er ört vaxandi borg á heimsmælikvarða og býður upp á marga áhugaverða viðskiptakosti fyrir fyrirtæki ásamt iðandi mannlífi og afþreyingu fyrir farþega. Við erum mjög ánægð með að geta boðið viðskiptavinum upp á þennan spennandi kost í leiðakerfinu okkar,“ sagði Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Air Iceland Connect mun annast flugið á Bombardier Q400 flugvél félagsins sem tekur 72 farþega í sæti í samstarfi við Icelandair. Flogið verður til og frá Keflavíkurflugvelli með sömu tengimöguleikum fyrir farþega yfir Norður-Atlantshafið og í öðru flugi í leiðarkerfi Icelandair á morgnana og síðdegis. Flogið verður til George Best City Airport sem er staðsettur aðeins 15 mínútum frá miðbæ borgarinnar og tekur flugið 2:55 klukkustundir.
Belfast er höfuðborg Norður-Írlands og langstærsta borg landsins með um 600 þúsund íbúa. Borgin er miðstöð stjórnsýslu og iðnaðar Norður-Íra og forn mennta- og menningarborg. Mikil saga er í borginni ásamt spennandi viðburðum, mörgum veitingastöðum og verslunum.
„Þessi nýja flugleið til Íslands mun sannarlega opna fyrir samgöngur okkar við Norður-Ameríku og er mikilvægur áfangi í því að auðvelda fólki um allan heim að komast til Norður-Írlands hvort sem það er í viðskiptaerindum eða til skemmtunar“, segir Simon Hamilton, efnahagsmálaráðherra Norður-Írlands.